„Hörður hefur verið boðaður á alla stjórnarfundi Landsvirkjunar nema þá þar sem verið er að fjalla um málefni sem tengjast honum beint,“ segir Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar innt eftir viðbrögðum sínum við ummælum Harðar Arnarsonar.
Hann sagði lausu starfi sínu sem forstjóri Landsvirkjunar fyrr í mánuðinum.
Sagði stjórn hafa fundað án sín
Hörður sagði í Sprengisandi á Bylgjunni um helgina að verklag milli sín og stjórnar hefði breyst – stjórn Landsvirkjunar hefði meðal annars fundað án þess að honum hefði verið boðið.
Þá hefði honum verið meinuð aðkoma að því að tjá sín mál á fundum og honum verið gert að víkja meðan mál tengd rekstri komu til umræðu.
Brynja segir það af og frá að Hörður hafi verið beðinn um að víkja af fundum þegar reksturinn var ræddur.
„Miðað við það hvað Hörður er með djúpa þekkingu á Landsvirkjun, gott innsæi og mikla reynslu þá hefur hans innlegg alltaf verið mikilvægt þegar rekstur og málefni Landsvirkjunar hafa verið rædd,“ segir hún.
Heimir Már: „Stjórn Landsvirkjunar er óhæf“
Starfslok Harðar og samskipti hans við stjórn Landsvirkjunar hafa verið milli tannanna á fólki að undanförnu.
Ingvi Hrafn Jónsson, fyrrum fréttastjóri, skrifaði á Facebook í gærkvöldi að formenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu greinilega hrakið Hörð úr starfi.
Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, svaraði honum og sagðist ekki telja það. „En það breytir því ekki að þessi stjórn Landsvirkjunar er óhæf.“
Brynja segist ekki sammála Heimi. Þvert á móti segir hún að stjórn Landsvirkjunar hafi lagt mikið upp úr góðum vinnubrögðum og því að fylgja lögum og reglum.
Fóru yfir dagskrána fyrir stjórnarfundi yfir hádegisverði
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sagði við Bítið á Bylgjunni að engir formlegir stjórnarfundir hefðu verið haldnir án Harðar en sjórnarmenn hefðu hist og borðað hádegismat saman fyrir fundina.
Brynja staðfestir að þetta verklag hafi verið tekið upp fyrir um rúmlega ári.
„Það er ekki skyldumæting. Við erum að gera þetta til að reyna að gera stjórnarfundina eins skilvirka og góða og mögulegt er.“
Hún útskýrir að stjórn fundi yfirleitt mánaðarlega í fjóra tíma í senn. „Stjórn tók upp á því að hittast í svona hálftíma fyrir hvern stjórnarfund, borða saman hádegisverð og fara yfir dagskrá fundarins.“
Stjórn hafi þar tekið til umræðu hvort hún teldi einhver mál krefjast meiri eða minni tíma en áætlaður var í dagskránni.
„Þetta samræmist algjörlega góðum stjórnarháttum“
Brynja segir að Hörður hafi alltaf verið upplýstur um þetta fyrirkomulag.
„Hann var ekki alsáttur við það en stjórn taldi sig þurfa að gera þetta til þess að geta sinnt sínu starfi eins vel og hægt er. Þetta samræmist algjörlega góðum stjórnarháttum og vinnubrögðum og er eitthvað sem er gert í fjöldamörgum fyrirtækjum og þar með talið í stórum fyrirtækjum í eigu ríkisins.“
Innt eftir því hvort starfshættir stjórnar Landsvirkjunar hafi breyst að öðru leyti síðan ný stjórn var skipuð telur Brynja að hádegisverðirnir hafi kannski verið stærsta breytingin.
Hún vill ekki tjá sig frekar um það í hverju ágreiningur stjórnar og Harðar fólst.
„Ég vil taka fram að Hörður hefur verið alveg afar farsæll forstjóri og ég ber mikla virðingu fyrir honum og við stjórnin öll. Fyrir honum og því starfi sem hann hefur skilað Landsvirkjun og þar með þjóðinni,“ segir hún.