Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar.
Í stað þess að fargjald sé niðurgreitt um fjörutíu prósent á nú að greiða fasta upphæð fyrir hverja ferð en Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra greindi frá því í gær, í kjölfar harðrar gagnrýni, að upphæðin yrði hærri en upphaflega var greint frá.
Sveitarstjóri Múlaþings segir þetta ekki duga til.
„Það hvort niðurgreiðslan á fluglegg, sem kostar kannski á milli 40 og 50 þúsund krónur, sé sjö eða níu þúsund er ekki það sem við erum að kalla eftir. Við höfum verið að kalla eftir því að Loftbrúin verði frekar aukin úr þessum 40 prósentum upp í 50 eða 60 prósent. Þannig að það er alveg ljóst að þetta dugar ekki til að koma til móts við það,“ sagði Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.
„Eitthvað sem við getum ekki stjórnað“
Níu þúsund krónur í afslátt væri góður ef íbúar séu svo heppnir að ná að bóka flugfar sem kosti fimmtán þúsund. Það sé hins vegar nýju reglurnar sem þýði að afslátturinn verði oft nálægt tuttugu prósentum.
Breytingarnar komi harðast niður á þeim sem þurfi að bóka flug með stuttum fyrirvara.
„Það verður kannski skyndilegt fráfall hjá ættingja og jarðarför er skipulögð með stuttum fyrirvara. Þetta er eitthvað sem við getum ekki stjórnað eða þá að við erum kölluð skyndilega inn í læknatíma, rannsókn eða eitthvað slíkt sem kannski er ekki niðurgreitt af Sjúkratryggingum,“ bætir Dagmar við.
Nær væri að horfa á flug sem almenningssamgöngur.
Dagmar vill að hlutirnir verði skoðaðir í stærra samhengi og veltir því upp af hverju flug frá stöðum á landsbyggðinni sé ekki skilgreint sem almenningssamgöngur.
„Það er verið að setja gífurlegar fjárhæðir í almenningssamgöngukerfið í Reykjavík. Það er ekki nærri því eins mikið sem er sett í almenningssamgöngur á landsbyggðinni, fyrir utan að við getum ekki nýtt strætó á milli Reykjavíkur og Egilsstaða því það tekur svo langan tíma að ferðast með þeim hætti á milli.“
„Það væri nær að horfa á flugið sem almenningssamgöngur og fá fjármuni í það sem þarf ef við viljum raunverulega halda byggð í öllu landinu.“
„Við getum ekki öll búið í Reykjavík“
Hún segist ekki hafa heyrt frá ráðamönnum eftir að gagnrýnin kom fram, að öðru leyti en því sem kom fram í máli ráðherra í gær. Dagmar segist vilja vera bjartsýn á að stjórnvöld hlusti á raddir íbúa á landsbyggðinni.
„Ég myndi bara vilja sjá hvernig við ætlum að reka þjóðarbúið ef allir ættu að búa á einum stað á höfuðborgarsvæðinu. Þá erum við ekki að fara að framleiða vörur sem við þurfum til að fá tekjur til landsins, þá veit ég ekki alveg á hverju við ætlum að lifa.“
„Þetta er okkar heimili. Hér viljum við vera og við viljum vera hér að skapa tekjur fyrir þjóðarbúið og leggja okkar af mörkum en það verður að gera okkur það kleift. Við getum ekki öll búið í Reykjavík og ég held að enginn vilji að Ísland verði þannig land.“
Hún telji að það sé sameiginleg sýn allra, líka ráðamanna, að hafa blómlegar byggðir um allt land. Þó verði að ná sameiginlegum skilningi á því hvað það merki og hvað það kalli á í þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar.
„Það eru allir sammála um það að Reykjavík er auðvitað höfuðborgin okkar og það eru ákveðnar stofnanir, menningarstofnanir, háskólar og annað, sem munu alltaf vera þar og það eru allir sáttir við það en við þurfum bara að hafa aðgengi að þessu.“