Theodór og Móheiður hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði, mættu saman á sýningaropnun í Hannesarholti í ágúst og hafa sést saman í Vesturbæjarlauginni. Parið er á svipuðu reki, Theodór er fæddur 1987 en Móheiður árið 1993.
Theodór Elmar fór ungur að árum út til Celtic og spilaði í sautján ár erlendis með liðum á borð við Lyn, IFK Göteborg, Randers og AGF. Hann endaði ferilinn í Vesturbænum, var aðstoðarþjálfari KR eftir að hann lagði skóna á hilluna og fór svo að vinna sem stuðningsfulltrúi í Hagaskóla. Hann var í sambandi með tískubloggaranum Pöttru Sriyanonge í sextán ár og á með henni tvö börn.
Sjá einnig: Pattra og Brynjar slá sér upp
Móheiður Guðmundsdóttir er sviðs- og tónlistarkona sem hefur unnið að skipulagningu Airwaves og starfað náið með Björk Guðmundsdóttur, samið dans- og sviðshreyfingar og leikið í sýningunum Jónsmessunæturdraumur í Tjarnarbíói og Kæra náttúra, ertu að reyna að drepa mig? í Afturámóti.