Vessandi forarsvað þar sem áður stóðu 250.000 tré
Skammt utan við smábæinn Muhos í norðanverðu Finnlandi, spottakorn frá Oulu, er um 330 hektara, vandlega afgirt svöðusár í annars ræktarlegum skóginum sem umlykur bæinn. Þar er búið að fella um 250.000 tré síðan í sumar til að rýma fyrir gagnaveri á vegum Google. Opinber eftirlitsstofnun hefur stöðvað framkvæmdirnar og hyggst kæra þær til lögreglu.
Það þykir mörgum heldur seint í rassinn gripið, því tréin eru horfin, rætur þeirra upp rifnar og meira að segja búið að fletta sverðinum af skógarbotninum. Eftir liggur eitt allsherjar forarsvað, afmarkað af skurðum og alsett aurtjörnum, moldarhaugum, rótarhnyðjum og djúpum skorningum eftir stórvirkar vinnuvélarnar sem ruddu skóginn.
Úr sárinu vessar stöðugt grábrún, þunnfljótandi - og súr - eðja í skurðina og þaðan í eina af mörgum þverám Oulujoki, einnar helstu meginár Norður-Finnlands. Og þaðan, eðli málsins samkvæmt, áfram út í sjálfa Oulujoki, sem er rúmlega hundrað kílómetra löng og knýr einar 12 vatnsaflsvirkjanir á leið sinni til sjávar nyrst í Helsingjabotni.
Hlusta má á umfjöllun Spegilsins um þetta í spilaranum hér að neðan, eða lesa hana áfram þar fyrir neðan.
Hófu framkvæmdir með látum löngu áður en umhverfismati var lokið
Gagnaverið sem á að rísa við Muhos er eitt 145 slíkra sem ýmist eru risin, í byggingu eða í undirbúningi í Finnlandi, og annað tveggja sem Google hyggst reisa á þessum slóðum. Hitt er við bæjarmörk Otanmäki, sjö hundruð sálna þorp í Kajanalandi, um hundrað kílómetra suðaustur af Muhos. Það er líka inni í miðjum skógi, þar sem búið er að fella um það bil 150.000 tré í leyfisleysi og banni. Yfirvöld hafa líka stöðvað framkvæmdir þar.
Ástæðan er í báðum tilfellum sú sama: Lögbundnu umhverfismati er ekki lokið og tilskilin leyfi ekki fyrir hendi. Finnskt dótturfyrirtæki Google keypti lóðirnar um mitt sumar og svo virðist sem hraði og umfang framkvæmdanna hafi komið yfirvöldum í opna skjöldu. Fyrirtækið hafði vart eignast lóðirnar þegar trjáfellingar hófust af krafti, segir á vef finnska ríkisútvarpsins, YLE, án fyrirliggjandi leyfis.
Sömu sögu er að segja af framræslu landsins; fyrirtækið tilkynnti um miðjan september að það ráðgerði að grafa um níu kílómetra af framræsluskurðum. Þegar að var gáð kom hins vegar í ljós að skurðgröfturinn var þá þegar langt á veg kominn, þótt lög kveði á um að tilkynna skuli slíkt með minnst 60 daga fyrirvara, svo hægt sé að meta umfang og möguleg umhverfisáhrif.
Við þetta bætist sprengivinna til að tæta upp rótarhnyðjur og slétta land, og heilmikil vegagerð, en allt flokkast þetta undir meiriháttar röskun á landi og landslagi með tilheyrandi hættu fyrir vistkerfi, dýralíf og vatnsbúskap - sem kallar á umhverfismat.
Dropi í finnska skógarhafið en mikil áhrif á nærumhverfið
Þótt 400.000 tré á 500 hekturum séu vissulega bara dropi í finnska skógarhafið, þá hefur þetta mikil áhrif í nærumhverfinu. Dæmi um það er mengunin frá forarsvaðinu við Muhos, sem stafar einkum af brotgjörnu flögubergi í jarðveginum. Það er afar súrt og fíngerður mulningur úr því berst út í og sýrir vatnasvæðið umhverfis með eðjunni sem þaðan rennur.
Úlfarnir í Otanmäki er annað dæmi Það er ekki bara rudda svæðið sjálft sem skemmist, segja þorpsbúar, framkvæmdirnar sjálfar, sprengingar, umferð og læti hræða og fæla dýrin í burtu og svipta sum þeirra búsvæði sínu. Þar á meðal eru úlfarnir sem lifðu og veiddu í skóginum umhverfis þorpið. Bráðir úlfanna flýðu lætin, og nú villast þeir inn í þorpið, aftur og aftur.
Tekist á um gagnaver í Finnlandi líkt og víða annars staðar
Hröð og mikil uppbygging orkufrekra gagnavera hefur vakið miklar umræður í Finnlandi og skoðanir eru skiptar. Hversu miklu af náttúru landsins er réttlætanlegt að fórna fyrir slíkan iðnað og alla orkuna sem hann kallar á, er spurt. Hljómar kunnuglega.
Forsætisráðherrann fagnaði því mjög fyrr á þessu ári þegar Google kynnti fyrirætlanir sínar um byggingu fjölda gagnavera í Finnlandi en aðrir vöruðu við þeim. Bæði hann og umhverfisráðherrann gagnrýna þó umhverfisspjöllin í Muhos og Otanmäki og almenningur og umhverfisverndarsamtök hafa brugðist ókvæða við.
Kallað er eftir framtíðarsýn, framtíðarstefnu, skýrum lagaramma utan um starfsemi gagnavera og bent á að stórfyrirtæki séu í óðaönn að notfæra sér gloppurnar í núgildandi löggjöf, byggja hratt og mikið á meðan það er enn hægt.
Framganga finnska Google-dótturfyrirtækisins í Muhos og Otanmäki þykir einmitt gott dæmi um þetta og hefur vakið mikla reiði. Hátt í 100.000 manns hafa þegar kvittað undir kröfu um skýrari löggjöf á þessu sviði og talið er að þetta verði áberandi málefni í kosningabaráttunni næsta vor. Finnar ganga til kosninga í apríl.
„Hreinn og beinn hroki"
Hanna Halmeenpää, formaður Náttúruverndarsamtaka Finnlands, segist hafa verið alveg gáttuð þegar hún heyrði af brotum tölvurisans. „Ég ætlaði bara ekki að trúa þessu,„ segir hún í viðtali við breska blaðið The Guardian, enda hefði hún aldrei heyrt annað eins um nokkuð annað fyrirtæki í Finnlandi. Þar hefði traust löngum verið límið í samfélaginu, kerfinu, og Google hefði misnotað það traust. „Þeir keyptu þetta stóra svæði og byrjuðu svo bara að ryðja það, sisona. Þetta er hreinn og beinn hroki, og alveg stórfurðulegt,“ segir hún.
Forstjóri hins finnska dótturfyrirtækis tölvurisans sagði það hafa farið af stað í góðri trú, fylgt lögum um skógarbúskap og fengið byggingarleyfi hjá sveitarfélaginu Muhos. Fulltrúar stjórnvalda eiga hins vegar bágt með að skilja hvernig sjóaður, finnskur forstjóri stórfyrirtækis þekki ekki finnsk lög um umhverfismat og kunni ekki muninn á þeim og byggingarleyfi sveitarfélaga.
Af yfir-byggingafulltrúanum í Muhos er hins vegar það að segja, að hún er komin í launalaust leyfi. Þetta staðfesti talsmaður sveitarstjórnarinnar, sem vill ekki segja neitt um ástæður leyfisins en fullyrðir þó að hún hafi sjálf beðið um það.
Það stangast á við orð yfir-byggingafulltrúans, sem sagði í viðtali við YLE að sveitarstjórnin hafi hótað að segja henni upp störfum vegna fyrra viðtals sem hún veitti YLE um Google-hneykslið í bæjarlandinu. Hinn byggingarfulltrúi sveitarfélagins er svo kominn í veikindaleyfi.