Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri Ágústsson netöryggissérfræðingur hjá OK.
Mikilvægt sé að kortleggja kerfi og setja upp varnir þar sem óprúttnir aðilar geti valdið meiriháttar tjóni með því að nýta sér slíka veikleika.
Allt að 70 prósent vefsíðna á internetinu reiða sig á PHP-forritunarmálið. Netöryggissveitin CERT-IS varaði á miðvikudag við tveimur mjög alvarlegum veikleikum í forritunarmálinu, sem gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á viðkvæmum kerfum.
Gallinn uppgötvaðist fyrr á árinu en upplýsingar um hann láku í vikunni, og því var nauðsynlegt að bregðast við. Vefsíðum fyrirtækja og stofnana víðs vegar um heiminn var lokað meðan á uppfærslu stóð.
„Maður hefur auðvitað áhyggjur líka af fyrirtækjunum sem vita mögulega ekki af þessu og geta þar af leiðandi ekki brugðist við,“ segir Ingólfur.
„Getur bara verið meiriháttar tjón“
Komist óprúttnir aðilar inn á kerfi í gegnum slíka veikleika geta þeir valdið miklum skaða, líkt og sýndi sig fyrr í mánuðinum þegar netárásir voru gerðar á franska stórmarkaði.
„Þetta getur verið bara meiriháttar tjón, gögn geta lekið og ég tala nú ekki um ef við horfum á þetta heildstætt,“ segir Ingólfur.
„Eins og með kælikerfið í Frakklandi, sem var bara hitað upp, og það þurfti að fleygja helling af mat. Það er dæmi um kerfi sem var tengt við netið en menn voru ekkert að spá í,“ segir hann.
„Svo það er mikilvægt að kortleggja allt sem er tengt við kerfið og nettengt,“ segir Ingólfur.
Hundruð íslenskra vefþjóna reyndust berskjaldaðir fyrir veikleikanum. Ingólfur segir afar mikilvægt að fólk sé meðvitað um ógnina af öryggisgöllum sem þessum.
Varar við að fleiri gallar muni uppgötvast
„Þetta er í rauninni ekki búið og það munu koma fleiri og þá skiptir máli að vera búinn að kortleggja hvað er á kerfunum hjá okkur og hvað er tengt við netið,“ segir Ingólfur.
Gervigreindin muni halda áfram að hjálpa til við og auðvelda það að finna svona veikleika. „Og finna þá hraðar svo þetta er spurning um hversu hratt við ætlum að bregðast við,“ segir Ingólfur Andri.