Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjónar og embættismenn hafi í sumum tilvikum verið látnir fylgja konungunum inn í framhaldslífið.
Roselyn Campbell, fornleifafræðingur við Purdue-háskóla í Bandaríkjunum, skoðaði 46 höfuðkúpur í hliðargrafreit nærri konunglegum grafreit skammt frá hinni fornu borg Abydos í Egyptalandi.
Í hliðargrafreitnum virðast þeir hafa verið jarðsettir sem tengdust konungshirðinni, meðal annars embættismenn, handverksfólk og þjónar konunga.
Áverkar á höfuðkúpum
18 af 46 höfuðkúpum báru merki um áverka sem gætu hafa verið banvænir, að mati Campbell. Þar á meðal voru beinbrot sem samrýmast þungum höggum og í einu tilviki greindist alvarlegur höggáverki við auga.
Campbell telur að sumir áverkanna hafi orðið um það leyti sem fólkið lést.
Mannfórnir, sem hluti af útförum konunga, virðast þó hafa verið skammvinnur siður í Egyptalandi til forna.
Fjöldi hliðargrafa minnkaði hratt og þær virðast hafa horfið snemma á annarri konungsætt Egyptalands.
Niðurstöður Campbells eru sagðar benda til þess að upphaf egypska konungsveldisins hafi einkennst af mun róttækari hugmyndum um samband konungs, valds og dauða en lengi hefur verið talið.