12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.
Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Hafrannsóknarstofnunar. Veiðin var 12% yfir meðalveiði áranna 1974-2025 og voru ákveðin landssvæði sem báru af. Jóhann Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga segir að veiðisumarið hafi í heildina verið mjög gott.
„Sérstaklega á Vesturlandi en það stóð sig gríðarlega vel en var svona aðeins blettóttara á Norðurlandi. Það voru sumar ár sem stóðu sig virkilega vel, eins og Laxá í Aðaldal, á meðan aðrar ár voru heldur lakari og það skýrist örugglega á mörgum þáttum.“
Veðurfar stór breyta
Góð laxveiði getur skýrst af ýmsu og er veðurfar stór breyta. Þá sé vætusamt veður einstaklega hagstætt fyrir laxveiði. Jóhann segir að laxveiðimenn og laxveiðibændur vilji frekar vætusamt veður.
„Þeir vilja hafa miklar rigningar, hafa mikið vatn í ánum svo hægt sé að laxinn gangi upp í árnar og að jafnaði hafi það almennt gott. Þannig að við sáum enga þurrka eins á Vesturlandi og það er stór breyta í þessum góða laxi sem var á Vesturlandi.“
Jóhann segir laxastofninn á Íslandi almennt vel staddan sé miðað við laxastofna í öðrum löndum.
„Laxastofnum í heiminum fer almennt mjög hrakandi. Þegar þeir eru komnir á lista yfir tegundir á válistum, alveg að komast útrýmingu ef ekki komnir á útrýmingarlista nú þegar í nokkrum löndum.“
Hann segir utanumhald á Íslandi til fyrirmyndar, þá sé búið að koma upp góðu kerfi sem hægt sé að fylgja.
„Íslenski stofninn, eða stofnarnir, stendur sig mjög vel og við erum með mjög gott kerfi með veiðifélög sem gera allt sem í valdi þeirra stendur til að hafa búsvæði ánna og lifun í ánum eins mikla og mögulegt er.“