Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla og ætla þeir að gera tilraun til þess að ræða bókun 35 á mannamáli. Er á ferðinni spurning um sjálft fullveldi og sjálfstæði Íslands?
Nýlega vakti tilkynning um snöggt brotthvarf Harðar Arnarssonar úr forstjórastóli Landsvirkjunar mikla athygli eftir 17 farsæl ár í starfi. Ekki síst þykir undarlegt að enginn málsaðila – fjármálaráðherra, stjórnarformaðurinn eða forstjórinn fráfarandi – hefur fengist til að gefa upp raunverulegar ástæður fyrir þessari atburðarás. Hörður verður í ítarlegu viðtali á eftir.
Þá koma Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður þingflokksins hjá Flokki fólksins, í hljóðverið til Páls. Báðar eru þær þingmenn Suðurkjördæmis þar sem meðal annars er að finna Bláskógabyggð – en inn í það tæplega 1500 manna sveitarfélag ætlar ríkisstjórnin að sækja 5 milljarða með svokölluðu náttúru-og innviðagjaldi strax á næsta ári. Þetta nemur öllum áætluðum afgangi af ríkissjóði samkvæmt fjárlagafumvarpinu.
Síðast en ekki síst tekur Páll á móti Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra og formanni Samfylkingarinnar. Þeir láta vaða á súlum og ræða það sem efst er á baugi í pólitíkinni.
Hægt er að hlusta á Sprengisand í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan eða á Bylgjunni.