Þetta segir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu.
Aðfaranótt 29. júlí síðastliðinn var brotist inn í Dalsbú í Mosfellsdal, síðasta minkabú landsins, öll búrin opnuð og minkunum sleppt út. Hildur Rún segir að rannsókn málsins sé umfangsmikil og lögregla vinni enn að því að fara yfir mikið magn gagna. Þó sjái fyrir endann á þeirri vinnu og lögregla vonist til þess að rannsókn ljúki fljótlega.
Sem stendur sé enginn með réttarstöðu sakbornings og í raun sé enginn grunaður um verknaðinn.
Innbrotið í Dalsbú var ekki eina innbrotið í bú í sumar en lögreglan tilkynnti um miðjan september að hún hefði upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi. Ungur karlmaður hefði verið handtekinn og játað brotin í kjölfarið.
Að sögn Hildar Rúnar er það mál komið á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem muni taka ákvörðun um útgáfu ákæru.