Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, sagði í dag að henni hefði ekki tekist að mynda ríkisstjórn. Hún fékk stjórnarmyndunarumboðið í síðustu viku og freistaði þess að fá flokka frá vinstri og hægri til samstarfs.
„Niðurstaða mín er sú að það sé til staðar meirihlutastuðningur við stjórnmálahugmyndir á miðjunni en að það sé ekki meirihlutastuðningur við ríkisstjórn á miðjunni,“ sagði Thand Ringqvist á blaðamannafundi.
Hún sagði viðræðurnar hafa verið opnar og uppbyggilegar en þær hefðu ekki skilað því að flokkarnir næðu saman um myndun ríkisstjórnar.
Hún sagði að það væri enginn meirihluti á þingi fyrir vinstrisveiflu í landsstjórninni.
Hægristjórn Ulfs Kristersson forsætisráðherra missti meirihluta sinn í kosningum 13. september. Vinstri- og miðjuflokkar náðu meirihluta en náðu ekki saman um myndun ríkisstjórnar.