Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fengust við margvísleg verkefni í gær. Auk hefðbundinna sjúkraflutninga og útkalla tóku þeir á móti barni og komu ketti til bjargar.
Dreng einum sem fæddist í gær lá á að komast í heiminn. Móðir hans var sótt með sjúkrabíl til að flytja hana á fæðingardeild. Drengurinn beið þó ekki eftir að komið væri á áfangastað heldur fæddist í sjúkrabílnum á leiðinni. Þetta gerðist um kvöldmatarleytið í gær.
Sigurjón Hendriksson varðstjóri segir að fæðingin hafi gengið fljótt og vel fyrir sig og að þetta sé myndardrengur. Hann segir það koma fyrir nokkrum sinnum á ári að barn fæðist í sjúkrabíl.
Annað sem kemur nokkuð reglulega fyrir er að slökkviliðsmenn komi dýrum til hjálpar.
Köttur einn lenti í helst til miklum ævintýrum þegar hann féll af níundu hæð fjölbýlishúss en komst þó inn á svalir íbúðar á fjórðu hæð. Þar sat hann fastur uns slökkviliðsmenn komu honum til bjargar.
Kisan Sigurlaug, sem alla jafna er nefnd Lauga, virtist brött en eigandinn fór með hana til dýralæknis í öryggisskyni. Sigurjón segir að þarna hafi kötturinn væntanlega misst eitt af sínum níu lífum.