Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta stærsta flokkinn.
Kjörstaðir í Serbíu lokuðu klukkan sjö að íslenskum tíma og nýjustu spár segja til um að fjöldahreyfing stúdenta fái 138 sæti á þingi, vel umfram þau 126 sem þarf til meirihluta, en flokkur Vucic 104.
Vučić rauf þing 8. september og boðaði til kosninga eftir mikil mótmæli undir forystu stúdenta. Rúmum tveimur vikum síðar, eða 27. september, sagði hann af sér sem forseti landsins. Viku síðar tilkynnti Vučić að hann hygðist bjóða sig fram í þingkosningunum sem forsætisráðherraefni Serbneska framfaraflokksins sem hafði verið við völd síðan 2012.
Fréttin verður uppfærð.