Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhúsið, er við Jórutún 16 á Selfossi. Nú hefur áhugahópur um varðveislu geymslunnar breytt henni í menningar- og listamiðstöð.
„Hérna erum við að breyta úr menningu kartöflunnar yfir í menningu mannanna og erum búin að vera í því í eitt og hálft ár. Við hugsum það þannig að þetta sé svona fyrir litla menningarlega viðburði, bókakynningar, lítil tónlistaratriði, þetta er heimilislegt menningarsetur,” segir Magnús J. Magnússon, sem á sæti í stjórn Langhússins menningarseturs.
Hverjir standa að þessari uppbyggingu?
„Það heitir grasrótarfélagið Langhús, sem eru bara sjálfboðaliðar. Það er fólk, sem vinnur þetta af eldmóði og hefur áhuga fyrir að koma þessu á fót,” segir Hrafnhildur Karlsdóttir, sem situr í stjórn Langhússins menningarsetur.
En hvað hefur verið áhugaverðast við þetta verkefni?
„Það er að sjá þetta þróast, að sýnin sem við höfðum fyrir einu og hálfu, tveimur árum, hún er að koma í ljós núna. Við erum ofboðslega ánægð með það að það sé kominn menningarsalur á Selfoss, loksins,” segir Magnús kampakátur.
Gunnar Sigurgeirsson, sem býr í næstu götu við kartöflugeymsluna og hefur unnið mikið að verkefninu, er hæstánægður með árangurinn.
„Já, þetta er gríðarleg vinna og gaman að þessu og það er mikil þörf á þessu húsi að vissu leyti fyrir ákveðna menningarstarfsemi. Þessi umgjörð kallar á að búa eitthvað til og þarna getur orðið einhver galdur og orðið svona rosalega góð stemning. Það er æðislegt að vera þarna inni og rosalega góður hljómburður,” segir Gunnar.