„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag.
Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í forsetakosningunum 2024, staðfesti heimkomuna skömmu síðar.
Reuters greinir frá því að teymi Machado hafi birt myndir af henni við kirkju í Lara-ríki. Ráðgjafi hennar segir að hún hyggist á næstu dögum hitta meðal annars fórnarlömb jarðskjálfta, fjölskyldur pólitískra fanga, erlenda erindreka og leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Hún ætli jafnframt að þrýsta á um að dagsetning frjálsra og sanngjarnra forsetakosninga verði ákveðin.
Machado yfirgaf Venesúela leynilega undir lok síðasta árs til að taka við friðarverðlaunum Nóbels í Noregi. Óljóst er nákvæmlega hvaða hlutverki Machado hyggst gegna nú þegar hún er komin aftur. Hún hefur áður sagt að hún myndi bjóða sig fram til forseta á ný ef kosningar yrðu haldnar.
Stjórnarandstaðan hefur þrýst mjög á um nýjar kosningar og Machado hefur sagt að þær eigi að fara fram í síðasta lagi í júlí á næsta ári. Engin dagsetning hefur hins vegar verið ákveðin.
Ýmislegt er breytt í Venesúela frá því að Machado fór úr landi. Bandarískar hersveitir handtóku Nicolás Maduro forseta í janúar og fluttu hann til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið ákærður fyrir ýmis brot.
Delcy Rodríguez, sem áður var varaforseti Maduro, tók í kjölfarið við sem starfandi forseti með stuðningi Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Rodríguez hefur lofað kosningum en engin dagsetning hefur verið ákveðin. Upphaflegt 90 daga bráðabirgðatímabil stjórnar hennar er jafnframt liðið.