Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunnar. Í sama bréfi segist hann hafa „kerfisbundið sneitt framhjá öllum fréttum RÚV síðustu ár“.
Í opnu bréfi á X, sem hann birti laugardagskvöldið 24. október, gagnrýnir Arnar Þór fréttaflutning RÚV og þátt Gísla Marteins Baldurssonar. Um áhorfendur skrifar hann meðal annars:
„[…] auk þess að reyna samviskusamlega að hlæja að „skemmtiþætti“ Gísla Marteins. Jafnvel þótt þú hafi komist svona langt án þess að lækka greindarvísitöluna niður fyrir skaðleg mörk, þá treysti ég mér þó til að staðhæfa að allir þessir þættir hafa ekki upplýst þig um hversu bágborið ástandið er í Frakklandi og ESB.“
Arnar Þór fullyrðir að RÚV hafi ekki greint frá áhyggjum Christians Sewing, forstjóra Deutsche Bank, af framtíð evrunnar. Hann tengir hugsanlegt greiðsluþrot Frakklands við fall evrunnar og ESB.
Samkvæmt frétt um viðtal Sewings við Bloomberg TV kallaði Sewing ástandið í Frakklandi áhyggjuefni. Hann vildi ekki kalla það skuldakreppu að svo stöddu en lýsti því sem vakningu um mikilvægi aga í ríkisfjármálum.
Arnar Þór tengir einnig óeirðir síðustu vikna í Frakklandi við loforð stjórnmálamanna um ríkisútgjöld. Nútíminn hefur fjallað um óeirðirnar, meðal annars í frétt um umfjöllun BBC.
Harmageddon | Frakkland er fallið
Arnar Þór hefur áður gagnrýnt fjölmiðla og stjórnmálamenn. Nútíminn hefur fjallað um að hann sakaði fjölmiðla um að hafa „fréttir til sölu“ og meirihluta þingmanna um að framselja fullveldi Íslands.