Stigmögnun skuggastríðsins

Stigmögnun skuggastríðsins

Stigmögnun skuggastríðsins

Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstríði Rússlands í Úkraínu hafa þessar ógnir og árásir aukist í Evrópu. Að sumra mati segja þessi orð þó ekki nákvæmlega hvað felst í fyrirbærinu. Á ensku eru fjölþáttaógnir hybrid threats. Framkvæmdastjóri NATO segir orðið allt of krúttlegt miðað við hvað það eigi að ná yfir og utanríkisráðherra Svíþjóðar segir það helst minna á umhverfisvænan bíl. Sumum dettur ef til vill fyrst í hug netárásir og njósnir við að heyra þessi orð, en fjölþáttastríðið, eða skuggastríðið, er þó umfangsmeira en svo.

Pakkasendingar með tímastýrðum sprengjum, drónar með sprengiefni, íkveikjur, eitranir, skemmdir á sæstrengjum, dularfull innbrot, netárásir, dreifing falsfrétta og flugsamgöngur úr skorðum vegna dularfullra dróna við flugvelli. Allt flokkast þetta sem fjölþáttaógnir, -árásir eða fjölþáttastríð.

Radoslaw Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sagði um miðjan síðasta mánuð að fjölþáttaógnirnar væru ekki lengur aðeins bank á dyrnar, þær væru komnar inn í húsið. Fjölþáttastríð Rússa væri breytilegt í eðli sínu. Þetta væru ekki einungis truflanir á netinu, upplýsingaóreiða eða njósnir. Reynt hefði verið að kveikja í byggingum í Póllandi. Í Litáen hefði verið gerð tilraun til að granda flugvél. Þetta hefði mistekist vegna klaufaskapar þeirra sem fremja áttu ódæðin. Auk þessa hefði Pútín sent aftökusveitir til Bretlands og Þýskalands.

Stuttu áður en ráðherrann sagði þetta höfðu Rússar gert drónaárás á lest nærri landamærum Úkraínu og Póllands. Lestin var enn Úkraínumegin og var á leið frá Kyiv til Póllands. Erindrekar erlendra ríkja voru skömmu áður á sömu leið í annarri lest.

Víða í Evrópuríkjum eru áhyggjur af stigmögnun þessara fjölþáttaárása og tilrauna til þeirra. Danska leyniþjónustan tilkynnti það mat sitt á dögunum að fjölþáttaárásir Rússa gegn Vesturveldum yrðu tíðari á næstunni. Mögulega yrðu gerðar netárásir sem hefðu í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir samfélagslega mikilvæga starfsemi og framin skemmdarverk sem hætta væri á að yllu manntjóni. Á blaðamannafundi þar sem matið var kynnt sagði varnarmálaráðherrann, Jeppe Bruus, að ástandið væri alvarlegt og að stjórnvöld tækju því alvarlega.

En hvað eru fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð?

„Það má lýsa því kannski þannig að þú ásælist lóð nágrannans eða húsið hans og í staðinn fyrir að koma og sparka upp hurðinni og taka yfir þá myndir þú læðast í skjóli nætur og byrja að grafa undan undirstöðum hússins og setja veggjalýs í veggina og hámarkið væri ef þér tækist að láta líta þannig út að það væru íbúarnir sjálfir sem væru að vinna þetta,“ útskýrir Bjarni Bragi Kjartansson, alþjóðastjórnmálafræðingur. Hann þekkir málefnið vel og hefur þróað og kennt námskeið um fjölþáttaógnir við Háskólann á Bifröst og við Háskóla Íslands. „Þú berst ekki en beitir leiðum sem að láta andstæðinginn sjá um að ráða niðurlögum sjálfs síns fyrir þig.“

Hann segir fjölþáttaógnir vera regnhlífarhugtak yfir þær aðferðir sem beitt er. „Þær eru óhefðbundnar aðferðir sem er beitt í hernaði. En þegar það er verið að tala um fjölþáttahernað þá er kannski meira verið að vísa til þess sem hefur alltaf verið, þessum aðferðum hefur alltaf verið beitt leynt og ljóst í gegnum aldirnar.“

Fjölþáttahernaði er sem sagt beitt meðfram hefðbundnum hernaði. Svo gætu líka verið einstaka árásir sem flokkast sem hryðjuverk.

„Án þess að ég sé að gera lítið úr því að ef það er árás eða drónaárás eða slíkt eða innbrot í tölvukerfi þá þarf það ekki að þýða að það sé fjölþáttaógn í sjálfu sér. En vissulega er þetta allt saman samtengt og beitt en grunnurinn er sá að þetta eru samþættar aðgerðir.“

Það er því ekki endilega alltaf skýrt hvort árás flokkist sem hryðjuverk, fjölþáttaógn/árás eða hefðbundin árás. „Þarna eru mörkin oft óljós og það er grundvallaratriði í þessu sem gerir þetta erfitt við að eiga að það er oft erfitt að útskýra þetta, að ræða þetta. Það er erfitt að takast á við þetta á stofnanalegum grunni, að fólk átti sig á þessu. Í prinsippinu gengur þetta út á að, það mætti bæta því við þessa skilgreiningu, að þetta sé undir þeim mörkum sem má telja sem stríð eða árás. Og eins og ég segi, íbúar hússins gera sér ekki grein fyrir því að það er búið að setja termíta í veggina eða að undirstöður hússins eru orðnar veikar.“

Dularfullir drónar á Leipzig-flugvelli í sumar

Evrópuríki hafa flest stutt Úkraínu eftir að Rússlandsher hóf innrásarstríðið 2022. Innan ríkjanna hafa komið upp mál sem Rússar eru ýmist grunaðir eða sakaðir um að bera ábyrgð á. Dularfullur dróni með sprengiefni fannst á flugvelli í Leipzig í Þýskalandi í byrjun ágúst, nálægt úkraínskri flutningaflugvél. Grunur var um að annar dróni hefði rekist á flutningaflugvél á flugi nálægt flugvellinum um svipað leyti. Skammt frá fannst lítið loftnet í tré. Talið er að það gæti hafa verið notað til að stjórna drónunum. Einnig voru vísbendingar um minni háttar sprengingu í skógi nálægt flugvellinum.

Utanríkis- og innanríkisráðherrar Þýskalands tilkynntu á blaðamannafundi nokkrum dögum síðar að samkvæmt lögreglurannsókn, ummerkjum árásanna og upplýsingum frá leyniþjónustu væri ljóst að Rússar hefðu verið að verki. Þessar yfirlýsingar þóttu sæta nokkrum tíðindum enda var það í fyrsta sinn sem þýsk stjórnvöld sökuðu Rússa opinberlega um atvikið.

Engan sakaði í þessari árásartilraun. Fram kom á fundi ráðherranna að tilraunin hefði verið fagmannlega undirbúin. Framkvæmdin hefði krafist mikillar tæknikunnáttu og skipulags. Þeir sem hefðu mætt með búnaðinn væru þó ekki háttsettir útsendarar heldur líklega lausráðnir smáglæpamenn eða málaliðar sem fengu greitt. „Við erum ekki í stríði en erum daglegt skotmark,“ sagði innanríkisráðherrann á blaðamannafundinum.

Annað mál tengist sendingum á pökkum frá Litáen til Bretlands, Póllands og Þýskalands sumarið 2024. Inni í pökkunum voru sprengjur sem hægt var að sprengja með fjarstýringu. Þeir fundust í Þýskalandi, Póllandi og Bretlandi. Ein sendingin sprakk hjá vörumóttöku DHL nærri Birmingham á Englandi og önnur í flutningabíl á leið til Póllands. Þriðji pakkinn sprakk á Leipzig-flugvelli í Þýskalandi, stuttu áður en átti að flytja hann um borð í flutningaflugvél. Ekki þarf að spyrja að leikslokum hefði hann sprungið í háloftunum.

Fyrr á árinu var greint frá því að 22 væru grunaðir í málinu; frá Rússlandi, Lettlandi, Eistlandi, Litáen og Úkraínu og samkvæmt Eurojust oft fólk í félagslega viðkvæmri stöðu. Það fékk fyrirskipanir í gegnum skilaboð í appi og fékk greitt með rafmynt.

Rannsaka innbrot á heimili finnskra þingmanna

Dularfullt mál kom nýlega upp í Finnlandi, þar sem lögregla rannsakar fjölda innbrota og meintar tilraunir til innbrota á heimili stjórnmálamanna. Forsætisráðherrann, Petteri Orpo, segir talið líklegt að þau hafi verið framin á vegum erlends ríkis.

Einnig eru eldri mál frá því fyrir allsherjarinnrásina sem flokkuð eru sem fjölþáttaárás. Þar á meðal eru eitrunarmál á Englandi. Dauði Alexanders Litvinenkos, fyrrum njósnara rússnesku leyniþjónustunnar, var meðal umtöluðustu morðmála í byrjun aldarinnar. Hann lést á sjúkrahúsi í London í nóvember 2006 eftir að hafa drukkið te með tveimur löndum sínum á fundi á hóteli í Lundúnum. Talið er að þeir hafi byrlað honum geislavirka efnið Polonium-210.

Á meðan Litvinenko lá banaleguna sakaði hann Vladimír Pútín forseta Rússlands um að bera ábyrgð á morðinu.

Mennirnir tveir sem hann drakk te með daginn örlagaríka voru á bak og burt til Rússlands þegar grunsemdir vöknuðu og fengust ekki framseldir til Bretlands. Annar þeirra varð síðar þingmaður Frjálslynda lýðræðisflokksins og fékk orðu frá Pútín fyrir þjónustu við föðurlandið.

Sumum þykir orðið hybrid ekki lýsandi

Allt sem talið var upp hér að ofan fellur undir hugtakið um fjölþáttahernað. Á ensku er þetta kallað hybrid threat, hybrid attack eða hybrid war. Ráðamenn eru margir uggandi yfir því að fjölþáttastríðið stigmagnist en þeir eru þó ekki allir sáttir við orðið sjálft, hybrid. Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði til dæmis á blaðamannafundi í lok september að honum þætti orðið hybrid helst til krúttlegt.

Maria Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í viðtali við Euronews í september að henni líkaði ekki orðið hybrid. Það hljómaði eins og umhverfisvænn bíll þó að merkingin ætti að vera allt önnur.

Bjarni Bragi bendir á að rætt hafi verið um að nota frekar orðið skuggastríð um fjölþáttaógnir og fjölþáttastríð. Heimskviður báru orðið fjölþáttaógn undir Önnu Sigríði Þráinsdóttur, málfarsráðunaut á RÚV. Að hennar mati er það ekki alveg nógu lýsandi orð.

„Mér finnst það líka svolítið veikt af því að það er verið að tala um einhvers konar hernað. Það eru einhverjar árásir gerðar á ýmsan hátt. Fjölþátta segir ekki hvaða árásir það eru en svo sem gerir fyrirmyndin það ekki heldur, enska orðið, en kannski er það ekki alveg nógu ógnvekjandi. Svo er líka spurning hvort ógn sé beinlínis rétta orðið því að ógn er eitthvað sem manni stendur stuggur af. Það er eitthvað sem okkur er kennt að forða okkur frá en hernaður er svolítið annað. Ógnin er bara þessi hótun um aðgerðir en hernaður er aðgerðin sjálf í mínum huga.“

Anna Sigríður segir Íslendinga heppna að vera að einhverju leyti herlaus þjóð. Því fylgi þó að íslenskan sé fátæk af orðaforða um stríð, hernað, vopn og titla í herjum. Því lendi Íslendingar oft í vandræðum með að orða nýjungar í stríði og hernaði, svo sem ný vopn og annað.

Er orðið fjölþátta orðið fast í sessi í íslenskunni? „Já, ég held að þetta sé það sem nú er notað. Það er komið inn í orðalista um alls konar hernaðarorð og þess háttar en við getum alveg breytt ef það kemur fram eitthvað betra.“

Upphaflega hafi ensku orðin hybrid war eða hybrid threat verið þýdd sem blendingsstríð en að fljótt hafi verið horfið frá því enda þótti orðið ekki henta. „Auðvitað er ógn bein þýðing á threat þótt ég hafi verið að tala það orð niður áðan. Þannig að fjölþátta er meira lýsandi en svo er hins vegar spurning hvort það sé nógu sterkt. Það er svo aftur annað mál þannig að við höfum oft horfið frá viðteknum orðum og tekið upp ný á öllum mögulegum sviðum þannig að það er ekkert því til fyrirstöðu en ég held að það sé búið að festa sig svolítið í sessi þannig að flestir séu farnir að kannast við hvað það merkir.“

Sterkur grunur um að Rússar skemmi sæstrengi

Þá ætlum við næst út á sjó því að Rússar beita sér líka þar. Heimskviður heyrðu í frönskum fræðimanni, Pierre Thévenin, sem er aðstoðarrannsakandi hjá SIPRI, Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Svíþjóð, og sjálfstæður ráðgjafi á sviði hafréttar og fjölþáttaógna á hafi úti.

Thévenin segir Rússa grunaða um að skemma sæstrengi og að vísbendingarnar séu sterkar. Skip Rússa hafi til að mynda sést undan ströndum Írlands og Englands og í Norðursjó. Önnur aðferð sem Rússar beiti á sjó sé með skuggaflotanum. Það eru rússnesk skip sem sigla undir fána annarra ríkja til að komast undan refsiaðgerðum Vesturvelda og flytja út olíuframleiðslu Rússlands.

Tilgangurinn með þessum aðgerðum á sjó sé að erfitt sé að bregðast við og eins að skapa ringulreið innan ríkjanna sem árásunum sé beint að. Einnig hafa verið annars konar aðgerðir á sjó sem flokkast sem fjölþáttaógnir, til dæmis þegar drónum var flogið frá skipum skuggaflotans að flugvellinum í Kaupmannahöfn og höfnum í Eystrasalti, segir Thévenin.

Fyrir um fimm vikum hafi áhöfn rússneskrar freigátu skotið tveimur blysum að þyrlu danska hersins. Annað blysið fór nærri þyrlunni en olli ekki skaða. Freigátan var á alþjóðlegu hafsvæði milli Sjálands í Danmörku og Þýskalands. Eftir árásina sagði Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur að Rússar væru orðnir sífellt árásargjarnari og hefðu hert á fjölþáttahernaði gegn Evrópu.

En geta ríki á einhvern hátt brugðist við og dregið fyrir dóm þá sem bera ábyrgð?

Thévenin segir það hægt en að það fari eftir því hver ógnin sé. Það hafi tekist að bregðast við ferðum skuggaflotans. Ríki hafi lagaheimildir til að stöðva för þeirra. Evrópuríki geti stöðvað för ef skip sigli ekki löglega undir fána annarra ríkja.

Ef til dæmis stjórnvöld í Frakklandi eða á Íslandi myndu hringja í skipaskrá ríkjanna sem skipin eru skráð hjá og spyrja hvort þau væru í raun skráð þar og svarið yrði nei myndi skipið vera skilgreint þannig að það sigli ekki undir neinum fána. Skip með þannig skilgreiningu mætti stöðva og það hefði verið gert.

Þá má skip heldur ekki sigla undir einum fána á einum legg ferðar og undir öðrum fána til baka. Það er aftur á móti flóknara að gera nokkuð varðandi skipin sem talið er að séu að kanna eða skemma sæstrengi.

Thévenin bendir á að strandríki hafi ekki lögsögu til að verja sæstrengi fyrir utan lögsögu sína og það skapi vanda. Ríki og fræðimenn hafi reynt að finna lausn á þessu síðan 2022. Skemmdir hafi verið unnar á sæstrengjum í Eystrasalti tólf sinnum, sem verði að teljast töluvert.

Thévenin segir Eista vinna að lagasetningu um að gera það glæpsamlegt að skemma mikilvæga innviði, þar á meðal sæstrengi. Ef einhver reyni slíkt geti sá hinn sami búist við allt að 15 ára fangelsisvist og þar sem fyrirtæki sé að baki þá geti sektin numið allt að fjórum milljörðum evra.

Umræða um að skilgreina skemmdir á sæstrengjum sem sjóræningastarfsemi

Þá hafa ríki utan Evrópu, eins og Ástralía og Nýja-Sjáland, sett lög sem kveða á um að yfir strengjunum sé öryggissvæði. Ef erlend skip sigla þar yfir er þeim bannað að vera á sama tíma að grufla í sjávarbotninum. Þau mega sem sagt ekki veiða, bora eða varpa akkeri á þessum öryggissvæðum. Danir hafi einnig samþykkt slík lög á tíunda áratugnum. Thévenin veit þó ekki til þess að sérstök öryggissvæði hafi verið skilgreind þar.

Þá er til umræðu hjá fræðimönnum að skilgreina skemmdarverk á sæstrengjum sem sjóræningjastarfsemi samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Afleiðing fyrir skip sem gerðust sek um sjóræningjastarfsemi yrði sú að þau myndu missa réttinn til að sigla undir fána ákveðins ríkis og þá gætu áhafnir varðskipa ríkja stöðvað för þeirra.

#skuggastríðsins #stigmögnun


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-10-25-stigmognun-skuggastridsins-490835

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefu...
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku...
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihl...
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
📅 25.10.2026 👁️ 1
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarl...
Lægir víðast hvar á morgun
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lægir víðast hvar á morgun
Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úr...
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla o...
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin h...
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
📅 25.10.2026 👁️ 2
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
Thousands of people who need help with everyday activities are still waiting for support in the Canary Islands, despite a substantial reduction in del...
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli v...
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
The tech billionaire accuses Ukraine of violating its terms of service by using the network for military activity.
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur!  Og sumir spila auðvitað á þetta. Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endileg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
Mynd Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst
Nóg sé komið af Trump - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Nóg sé komið af Trump - Vísir
„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““...
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
📅 25.10.2026 👁️ 1
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn Skylar SkyeÖrlög Carrick gætu ráðist í dag Mynd: Instagram Kona sem er mi...
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
A 19-year-old man was seriously injured and a second man taken to hospital after a collision involving two motorcycles and a car on the TF-24 in Tener...
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann h...
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
📅 25.10.2026 👁️ 3
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
Temperatures could reach 30°C in parts of the Canary Islands today, Sunday 25th October, with sunny spells, passing cloud and a return of calima, main...
Obama gagnrýndi Trump harðlega
📅 25.10.2026 👁️ 3
Obama gagnrýndi Trump harðlega
Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio o...
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“ Mynd: Golli Reynir Pétur Steinunnarson vakti athygli landans árið 1985 þegar hann gekk hringinn í kring...
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
Sheikh Muhammad Taqi Usmani, fyrrverandi dómari í sjaríadeild Hæstaréttar Pakistans, hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi í Skógarhlíð í Reykjaví...
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
📅 25.10.2026 👁️ 3
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
Lanzarote’s volcanic scenery is spectacular from the surface, but some of its most intriguing sights lie beneath your feet.In the north of the island,...
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“ „Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segi...
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
📅 25.10.2026 👁️ 3
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
2.000 Palestínumenn voru hraktir af heimilum sínum í Hebron á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz segir að fólkið hafi ve...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
📅 25.10.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
📅 25.10.2026 👁️ 3
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
Chancellor John Healey may need to raise money to boost his fiscal headroom - BBC Verify examines what options could be on the table.
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
📅 25.10.2026 👁️ 3
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirt...
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
📅 25.10.2026 👁️ 3
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
The Israeli Defense Forces announces restrictions on the movement of Palestinian workers in the run-up to Tuesday's election.
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
📅 25.10.2026 👁️ 3
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
Rómversk-kaþólska erkibiskupsdæmið í New York og lögmenn þess hafa samþykkt að greiða sáttagreiðslur að upphæð 800 milljónir dollara til þolenda kynfe...
Budget to include £1bn for social and affordable housing
📅 25.10.2026 👁️ 3
Budget to include £1bn for social and affordable housing
The move will take funding for the 10-year programme to more than £40bn.
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad í Sádi-Arabíu verður opnaður að nýju í dag eftir tveggja vikna lokun vegna árása Húta á flugvöllinn. Hútar hafa gert nokkr...
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
📅 25.10.2026 👁️ 3
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
Sources close to the duchess said she warned her father last year that he would never meet his grandchildren.
Burnham open to 'honest discussion' on EU free movement
📅 25.10.2026 👁️ 4
Burnham open to 'honest discussion' on EU free movement
The PM said he wants a "factual" and "evidence-based debate" about returning to free movement between Britain and Europe.
Eldur í grilli í Bryggjuhverfi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Eldur í grilli í Bryggjuhverfi
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst útkall uppúr klukkan 20:30 í kvöld vegna elds á svölum í raðhúsi í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Eldur hafði kvi...
Obama segir „nóg komið“ af Trump
📅 25.10.2026 👁️ 3
Obama segir „nóg komið“ af Trump
Obama segir „nóg komið“ af Trump Barack Obama gagn­rýndi Donald Trump á kosn­inga­fundi í Ohio. Spennan magn­ast fyrir afdrifa­ríkar þing­kosn­ingar. ...
Brazil election: Voters to choose between Lula and Bolsonaro's son
📅 24.10.2026 👁️ 5
Brazil election: Voters to choose between Lula and Bolsonaro's son
Flávio Bolsonaro, the son of Brazil's jailed former president, is presenting a strong challenge to Lula, 80, who is seeking a fourth term in office.
Spennandi kosningar fram undan
📅 24.10.2026 👁️ 5
Spennandi kosningar fram undan
Það stefnir í hörkuspennandi kosningar í Brasilíu í dag þegar önnur umferð forsetakosninganna fer fram. Mjótt er á munum milli sitjandi forseta og lei...
Rosebank: Life on the oil field at the centre of a political storm
📅 24.10.2026 👁️ 5
Rosebank: Life on the oil field at the centre of a political storm
Scotland editor James Cook finds out what life is like on board a ship in an untapped oil field awaiting its fate.
Musk segi ó­satt um Starlink - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 5
Musk segi ó­satt um Starlink - Vísir
Sternenko segir slíka notkun hins almenna Starlink-kerfis tæknilega ómögulega og að drónar sem þurfa gervihnattatengingu á ferð hafi þurft að tengjast...
Music streaming: Why we're listening to so many old songs
📅 24.10.2026 👁️ 3
Music streaming: Why we're listening to so many old songs
The chart is full is full of old music and classic songs are dominating streaming services. But why?
The row over military service that could shape Israel's future
📅 24.10.2026 👁️ 5
The row over military service that could shape Israel's future
The ultra-Orthodox community is resisting being drafted into the Israeli army. But will they now bring down the Netanyahu government?
Why the King's Caribbean tour could be 'biggest risk of his reign'
📅 24.10.2026 👁️ 5
Why the King's Caribbean tour could be 'biggest risk of his reign'
The meticulously-planned visit takes in three countries in nine days - but is not without jeopardy.
Why is Ukraine so reliant on Starlink and can Europe plug the gap?
📅 24.10.2026 👁️ 5
Why is Ukraine so reliant on Starlink and can Europe plug the gap?
Ukraine needs another satellite internet service, but a decent alternative to Elon Musk's network doesn't exist - yet.
Bukangi: Will the shark leave the Busan canal and make it back to sea?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Bukangi: Will the shark leave the Busan canal and make it back to sea?
More than a million people flocked to Busan to catch a glimpse of the female dusky shark they called Bukangi.
Ísraelar mótmæla ríkisstjórn Netanjahús
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ísraelar mótmæla ríkisstjórn Netanjahús
Þúsundir komu saman í Tel Aviv í dag til að mótmæla ríkisstjórninni. Stutt er í kosningar í Ísrael en þær verða haldnar á þriðjudaginn. Ljóst er að þæ...
Who are the candidates for the Brazilian election?
📅 24.10.2026 👁️ 1
Who are the candidates for the Brazilian election?
Voters in Sunday's election are choosing between two very different candidates, as Americas correspondent Ione Wells reports from Rio de Janeiro.
Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald - Vísir
Þau Sverrir Möller og Mirjam Blekkenhorst fluttu á Langanes árið 1991. Þar reka þau ferðaþjónustu, stunda sauðfjárrækt og hrossabúskap með fleiru. Ein...