Þau Sverrir Möller og Mirjam Blekkenhorst fluttu á Langanes árið 1991. Þar reka þau ferðaþjónustu, stunda sauðfjárrækt og hrossabúskap með fleiru.
Ein yndislegasta og skemmtilegasta búgreinin
„Við byrjuðum fyrir fjórum árum í blóðmerarhaldi. Og þetta er bara ein yndislegasta og skemmtilegasta búgrein sem við höfum stundað,“ segir Sverrir, sem er búfræðingur að mennt, en hér í sjónvarpfrétt Sýnar lýsir hann sinni hlið á þessari umdeildu atvinnugrein:
„Það er allt svo jákvætt og gott við blóðmerahaldið. Maður fær eiginlega allt aðra sýn á hross.
Nú hef ég verið að temja hross eiginlega síðan ég var fjórtán ára gamall og þetta er allt önnur sýn. Það er svo gaman að umgangast þessar merar og þær eru svo gefandi.“
-Erum við þá að fá ranga mynd af blóðmerahaldi í fréttunum?
„Já, ég þekki það ekki allavega eins og fréttaflutningurinn er af því. Nei, þekki það ekki þannig.“
Rangfærslur um blóðmerahald
-En finnst þér hann ósanngjarn?
„Gríðarlega, gríðarlega ósanngjarn. Maður hugsar bara: Já, þeir eru að taka þetta fyrir núna. Hvað gera þeir næst? Voru þeir ekki að hamra á svínabændum? Er ekki búið að sleppa minkunum lausum? Kjúklingabúin? Hver er næstur? Sauðféð? Við höfum nú alltaf þurft að vera í vörn gagnvart því.
Já. Þannig að auðvitað finnst manni þetta vera ósanngjarnt.“
Sverrir segist vera bóndi á grasnytjajörð. Hann sé fyrst og fremst skepnumaður.
„Og ég væri ekki á þessari jörð nema þetta væri grasnytjajörð og þess eðlis að geta borið skepnur.“
-Þannig að þú ert stoltur blóðmerabóndi?
„Já, mjög. Og vona bara að þessi búgrein komi til með að lifa áfram. En maður veit aldrei neitt.“
-Meginrök þeirra sem eru á móti blóðmerarhaldi, finnst þér þau ekki halda?
„Nei, það hafa aldrei verið nein rök. Það hafa verið þessar rangfærslur sem hefur verið haldið fram um þetta.
Það er alltaf verið að reyna að manngera skepnur og bera saman mann og mús. Það gengur ekkert.“
Miklar gjaldeyristekjur
-Þannig að þú ætlar stoltur áfram að vera í blóðmerahaldi?
„Já, svo sannarlega. Meðan við fáum greitt fyrir þetta og meðan verðið er ásættanlegt.
Þetta er búgrein sem nýtur einskis ríkisstuðnings. Af hverju er verið að reyna að hamra hana niður? Þetta er búgrein sem er að gefa okkur, ef mig minnir rétt, yfir tvo milljarða í gjaldeyristekjur. Meira heldur en öll önnur hrossarækt í landinu. Af hverju er verið að reyna að berja þetta niður? Þetta eru heilbrigðustu skepnur sem ég þekki.“
„Ég er nú búinn að vera í sauðfjárrækt og þar við erum að missa fimm til fimmtán prósent af fénu hvert einasta ár.
En í þessi fjögur ár er ég búinn að missa tvö folöld og enga meri.“
Það leiðinlegasta sem bóndi upplifir er að skepnu líði illa
-Er ósanngjarnt og rangt að kalla þetta dýraníð?
„Já, svo sannarlega. Vegna þess að þessum skepnum líður alveg ákaflega vel. Þeim líður alveg gríðarlega vel. Og það er þess vegna sem maður er svona ánægður í þessu af því maður finnur hvað þeim líður vel.
Það leiðinlegasta sem að bóndi upplifir er að einhver skepna sé veik eða líði illa.
Í þessari búgrein, þá bara lifir allt. Því líður öllu vel, lifir lengi og vel og engin vanhöld nánast sem talandi er um,“ segir Sverrir bóndi á Ytra-Lóni.