Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio og Michigan í gær. Obama sagði ríkisstjórn Trumps bera ábyrgð á hækkun framfærslukostnaðar, sem er eitt helsta áhyggjuefni kjósenda, auk hækkandi eldsneytisverðs.
Obama sagði forsetann hafa tekið röð rangra ákvarðana og hann hefði hafið ónauðsynlegt stríð sem enginn bað um. „Eftir tvö ár af ringulreið, grimmd, spillingu og vanhæfni - sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum - fáið þið fækifæri til að segja: ,,Nú er nóg komið,“ sagði Obama og bætti við „við ætlum að kjósa breytingar, hér í Ohio.“
Obama, sem nýtur enn töluverðra vinsælda meðal demókrata, kom fram á kosningafundunum til að lýsa yfir stuðningi sínum við frambjóðendur flokksins í komandi þingkosningum. Hann lýsti yfir stuðningi sínum við Sherrod Brown í Ohio sem býður sig fram til öldungadeildar og Amy Acton, sem býður sig fram sem ríkisstjóra Ohio. Þá lýsti hann yfir stuðningi sínum við Abdul El-Sayed í Michigan sem er í framboði til öldungadeildar.
Demókratar freista því að tryggja sér meirihluta í bæði fulltrúadeild og öldungadeild. Skoðanakannanir í Ohio benda til þess að demókratar hafi naumt forskot í ríkinu.
Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum 3. nóvember næstkomandi.