Þúsundir komu saman í Tel Aviv í dag til að mótmæla ríkisstjórninni. Stutt er í kosningar í Ísrael en þær verða haldnar á þriðjudaginn. Ljóst er að þær verða prófsteinn fyrir forsætisráðherrann Benjamin Netanjahú og hægristjórn hans eftir nærri þriggja ára stríðsrekstur á Gasa, í Íran og í Líbanon.
Októberráðið, hópur sem stofnaður var af fjölskyldum fórnarlamba og gísla sem Hamas-liðar tóku í árásinni 7. október 2023, stóð á bak við mótmælin. Hópurinn krefst þess að valdamenn verði dregnir til ábyrgðar fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir árásina.
Samkvæmt ísraelskum fjölmiðlum tóku leiðtogar fjögurra helstu stjórnarandstöðuflokkanna þátt í samkomunni, þar á meðal Gadi Eisenkot sem samkvæmt skoðanakönnunum stendur hnífjafn Netanjahú og fékk hlýjar móttökur hjá mannfjöldanum.
Brottfluttir Ísraelar flykkjast nú til heimalandsins til að kjósa, en tugir þúsunda hafa flutt frá landinu að undanförnu vegna óánægju með stjórnvöld. Ísrael er eitt fárra landa sem leyfir ekki kosningar utan landsteinanna.
„Þeir sem hafa leitt okkur síðastliðin fjögur ár hafa staðið sig skelfilega illa,“ hefur fréttaveitan AFP eftir einum mótmælanda. „Ísrael hefur aldrei verið í annarri eins stöðu og nú.“
Nýjustu skoðanakannanir, sem voru birtar áður en bann við birtingu kannana tók gildi í gærkvöld, gáfu til kynna að hvorug fylkingin fengi meirihluta þingsæta á ísraelska þinginu. Samkvæmt könnun sem ísraelska ríkisútvarpið KAN birti myndi fylking Eisenkots fá 52 af 120 sætum á ísraelska þinginu og fylking Netanjahús fá 50. Afgangurinn færi til flokka utan fylkinganna, þar á meðal flokka araba.
Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti formlega yfir stuðningi við Benjamín Netanjahú í kosningum sunnudaginn síðastliðinn.