Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar.
Drífa Snædal talskona Stígamóta segir fólki misbjóða þegar brotaþoli er gerður ábyrgur fyrir skaða sem hann hlýtur en ekki gerandi.
Brotaþoli gerður ábyrgur
Dómur Landsréttar sem sýknaði mann af ákæru um nauðgun hefur sætt mikilli gagnrýni. Dómararnir voru ósammála en meirihluti komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði ekki gerst sekur um nauðgun því konan hefði gefið samþykki fyrir harkalegu kynlífi. Hún hlaut alvarlega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og tapaði heyrn.
„Það er mikill skaði sem hlýst af en brotaþolinn er gerður ábyrgur fyrir því en ekki sá sem veldur skaðanum. Fólki misbýður það, eðlilega,“ segir Drífa.
Dómum endurtekið snúið við í Landsrétti
„Við erum að sjá það trekk í trekk að það er verið að snúa við dómum í Landsrétti sem hafa fallið í héraði sem okkur finnst vel undirbyggðir í héraði. Þannig að ég hef tekið undir að það þarf að skoða það sérstaklega,“ segir Drífa.
Hún segir það hættulegt samfélaginu ef fólk geti ekki treyst dómskerfinu. Þá leiti fórnarlömb annarra leiða.
„Eins og að fara á samfélagsmiðla og tala um ofbeldisverkin og nefna gerendur til að fá eitthvað réttlæti, til að vara aðra við. Það er ekki endilega það samfélag sem við viljum,“ segir Drífa.
Hún segist vona að undirskriftalistinn hafi áhrif, dómstólar eigi að taka mið af siðferðiskennd almennings.
Brotaþolar missi traust til dómstóla
Drífa segir það koma í ljós síðar hvort dómurinn hafi áhrif á starf Stígamóta. „Oft er það þannig að þegar svona mál koma upp þá veldur það særindum og kveikjum hjá öðrum brotaþolum. Við höfum ekki séð það síðustu vikur, ekki svo ég viti til,“ segir hún.
„Ég get alveg ímyndað mér að brotaþolar missi traust til dómskerfisins og það var nú ekki mikið fyrir. Um 10% sem koma til Stígamóta kæra ofbeldisbrot gegn sér. Það hefur verið barátta að byggja upp eitthvað traust til dómskerfisins og þetta verður ekki til þess að auka það.“