Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 krónur í styrk á hvern fluglegg í stað fyrir 7000 krónur. Með því þá fengi Loftbrú hæsta fjármagn á fjárlögum nokkru sinni. Þetta er sannarlega í forgangi hjá okkur þetta mál,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.
Aðspurður segir hann upphæðina nema um tvöhundruð milljónum, sem kæmu aukalega inn í þær fjárveitingar sem fyrirhugaðar eru í fjárlagafrumvarpi til Loftbrúar.
„Við náttúrulega hlustum á landsbyggðina“
Síðastliðin sex ár hafa íbúar á landsbyggðinni getað nýtt Loftbrú við kaup á innanlandsflugi. Hver og einn á rétt á allt að sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir.
Á föstudag tilkynnti innviðaráðuneytið þá breytingu á fyrirkomulaginu frá áramótum að í stað 40% af heildarverði verði 7000 krónur niðurgreiddar af hverjum fluglegg.
Breytingarnar hafa mætt mikilli andstöðu frá sveitarstjórnarfólki víða um land sem gagnrýna ríkisstjórnina fyrir samráðsleysi. Niðurgreiðslan nægi ekki til að mæta háum flugfargjöldum.
„Við náttúrulega hlustum á landsbyggðina að sjálfsögðu og það er barátta um hverja krónu í samgöngumálum og við stefnum á að forgangsraða Loftbrúnni og höldum að þessi kerfisbreyting, að fara í fasta krónutölu, sé mjög mikilvæg.“
Þá hafa þingmenn ríkisstjórnarflokkanna, bæði Viðreisnar og Flokks fólksins, gagnrýnt fyrirkomulagið og kallað eftir að það verði endurskoðað.
„Við munum fylgjast vel með þessu, varðandi fjárstreymi í Loftbrú og sjá hvernig best megi nýta peninga skattborgara,“ segir Eyjólfur.
Hvenær má gera ráð fyrir því að þetta liggi ljóst fyrir?
„Bara í næstu viku.“