Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar nú í nóvember.
Danska ríkisútvarpið hefur fengið aðgang að rannsóknargögnum sænsku lögreglunnar, sem nema meira en tvö þúsund blaðsíðum.
Málið hófst þegar lögreglumenn urðu varir við manninn og bróður hans í Gullringen skömmu fyrir síðustu áramót. Samkvæmt lögregluskýrslu þótti maðurinn óvenju taugaveiklaður og sýna merki um fíkniefnaneyslu.
Lögregla ákvað í kjölfarið að gera húsleit.
Brjóstmynd af Hitler og hakakrossar
Við leitina á heimili mannsins og í geymsluhúsnæði sem hann hafði aðgang að fundust alls 31 vopn og meira en fjórtán þúsund skotfæri. Þar á meðal voru sex haglabyssur, þrjár hálfsjálfvirkar skammbyssur og tveir hálfsjálfvirkir rifflar.
Lögreglumenn fundu einnig stóra fána með hakakrossum, merki SS-sveita, nasistabúninga og brjóstmynd af Adolf Hitler. Lítill danskur fáni var hafður við hlið brjóstmyndarinnar.
Varsla slíkra muna er ekki ólögleg í Svíþjóð og maðurinn er því ekki ákærður vegna þeirra. Hann er hins vegar meðal annars ákærður fyrir vörslu á sprengjuhylki, tólf táragasblysum, 96 merkjaskotum og kveikiþráðum.
Hann hafði áður einnig verið grunaður um að hafa haft nokkrar dýnamítstangir undir höndum en sá liður rataði ekki í ákæruna.
Saksóknarinn Jacob Semark hefur lýst haldlagningunni sem einni þeirri umfangsmestu á vopnum sem gerð hefur verið í Svíþjóð.
„Dauði yfir alla Gyðinga“
Við rannsókn málsins fór lögregla einnig í gegnum síma mannsins og samskipti hans við mann sem hann lýsti sem fyrrverandi samstarfsmanni með sameiginlegan áhuga á síðari heimsstyrjöldinni.
Maðurinn skrifaði meðal annars orð sem þýða mætti sem „dauði yfir alla Gyðinga“ og ræddi við vin sinn um að halda upp á afmælisdag Hitlers 20. apríl með góðum mat og skála fyrir „foringjanum“.
Í myndskeiði sem maðurinn tók á heimili sínu í desember 2024 sýndi hann einnig safn nasistamuna. Samkvæmt endurriti lögreglu lauk myndbandinu á nasistakveðju og orðunum „Heil Hitler“ og „dauði yfir alla Gyðinga“.
Maðurinn neitar því hins vegar að vera nasisti.
„Ég er alls ekki nasisti. Þetta er bara í gamni,“ sagði hann við yfirheyrslu lögreglu, samkvæmt gögnum DR.
Hann segir áhuga sinn á mununum vera söfnunaráhuga sem nái aftur til barnæsku og segist einnig safna munum tengdum kommúnismanum.
Langafi hans var SS-foringi
Faðir mannsins hefur staðfest við lögreglu að fjölskyldan hafi lengi haft mikinn áhuga á vopnum og veiðum. Hann sagði jafnframt að langafi hins ákærða hefði verið foringi í SS-sveitum nasista og að það skýrði að hluta hvers vegna sonurinn hefði nasistamuni undir höndum.
Hinn ákærði segir vopnin að stórum hluta hafa komið frá látnum frænda sínum í Danmörku. Frændinn hafi komið með vopn í heimsóknir til Svíþjóðar og maðurinn sjálfur hafi einnig tekið vopn með sér frá Danmörku. Hann hafði ekki tilskilin leyfi fyrir vopnunum.
Maðurinn hefur viðurkennt brot á vopnalögum en hafnar því að brotið eigi að teljast gróft. Hann er ekki ákærður fyrir að hafa ætlað að nota vopnin til árásar. Réttarhöld í málinu fara fram í Kalmar í nóvember.