Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunartími hans rennur út í mars á næsta ári. Runólfur greindi sjálfur frá þessu í grein í fréttabréfi Landspítalans sem kom út í dag.
„Forstjóratíð mín hefur nú staðið í tæp fimm ár og lýkur upphaflegum skipunartíma mínum 1. mars næstkomandi. Starfið er krefjandi en á sama tíma gefandi. Mikilvægir áfangar hafa náðst og unnið er hörðum höndum að mörgum áhugaverðum verkefnum. Fagmennska starfsfólks í þjónustu við sjúklinga og aukin afköst á því sviði eru mér sérstakt ánægjuefni,“ skrifar Runólfur, sem var skipaður forstjóri Landspítala 1. mars 2022.
„Ég hef mikinn metnað fyrir hönd Landspítala og mikla trú á þeim hæfileikum sem búa í mannauði stofnunarinnar. Ég hef því fallist á beiðni ráðherra um að sinna starfi forstjóra áfram og hefur skipun mín því verið framlengd til loka ársins 2029.“