Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist hafa samþykkt aðgerðaáætlun kínversku netverslunarinnar sem ætlað er að bæta úr brotum á reglugerð ESB um stafræna þjónustu. ESB sektaði Temu í maí um 200 milljarða evra fyrir að fyrir að leyfa sölu á ólöglegum vörum, eins og hættulegum barnaleikföngum.
Á meðal þess sem Temu ætlar að gera er að rannsaka hvernig meðmælakerfi vefverslunarinnar stuðla að útbreiðslu á ólöglegum vörum. Framkvæmdastjórn ESB, sem fer með eftirlit með stafrænum reglum sambandsins, segir í yfirlýsingu að áætlunin feli í sér fimm aðgerðir til að bæta úr brotunum. Temu hefur nú fjóra mánuði til að gera bráðabirgðaáhættumat.
Í yfirlýsingu frá Temu kemur fram að fyrirtækið meti mikils uppbyggileg samskipti við framkvæmdastjórnina.
Aðgerðaáætlunin beri vott um skuldbindingu Temu til að fjárfesta í kröftugum innviðum til að tryggja öruggt og áreiðanlegt verslanaumhverfi fyrir alla evrópska notendur.