Eyjólfur Ármannsson íhugar breytingar á breytingum á Loftbrú. Ákvörðun sem ráðherra kynnti fyrir helgi mætti mikilli mótstöðu; að niðurgreiða sex flugleggi um fasta krónutölu, 7000 krónur hvern en ekki um 40% eins og hefur verið frá því 2020. Ráðherra skoðar að hækka töluna í 9000 krónur á fluglegg.
Ákvörðun innviðaráðherra kom mörgum sveitarstjórum í opna skjöldu. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Höfn, sagði í samtali við fréttastofu á föstudaginn að ekkert samráð hefði verið um málið þrátt fyrir fyrirheit um annað, síðast á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fór í október.
Mætti mikilli mótstöðu
Ákvörðun ráðherra mætti mikilli mótstöðu um helgina. Bæði sveitarstjórar, kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum, landshlutasamtök og þingmenn bæði í stjórn og stjórnarandstöðu mótmæltu áformunum. Ingvar Þóroddsson var einn þeirra þingmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri breytingu.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem situr á þingi fyrir Flokk fólksins eins og Eyjólfur, gagnrýndi breytinguna líka um helgina.
Á sunnudaginn sagði Eyjólfur í viðtali við RÚV að hann væri að íhuga að hækka töluna í 9000 krónur á fluglegg.
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 krónur í styrk á hvern fluglegg í stað fyrir 7000 krónur. Með því þá fengi Loftbrú hæsta fjármagn á fjárlögum nokkru sinni. Þetta er sannarlega í forgangi hjá okkur þetta mál,“ sagði Eyjólfur.
Hreinn niðurskurður
Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur telur að ákvörðun ríkisstjórnarinnar sé sprottinn af hvatanum til þess að skila hallalausum fjárlögum. Hann telur að fjármálaráðherra hljóti að hafa haft bönd í bagga:
„Þetta endar í ákvörðun sem virðist vera hreinn niðurskurður á þessu. [...] Þetta þarf ekki að koma á óvart þegar er verið að horfa til þess að skila hallalausum fjárlögum. [...] Ég held að fjármálaráðherra hljóti að hafa verið þarna í bakgrunninum.“
Grétar telur Eyjólf ekki hafa verið að spila neina skák með því að tala um 7000 krónur á föstudegi og 9000 krónur á laugardegi:
„Eyjólfur hefur unnið hingað til þannig að hann hefur komið strax beint framan að fólki og þjóðinni með þær ákvarðanir sem hann hefur verið að kynna. Ég held hann hafi frekar áttað sig á því að þetta hafi verið of langt gengið. Enda er hann strax byrjaður að tala um að hækka þetta.“
Frá því að Loftbrú var komið á árið 2020 hefur ríkið áætlað 600 milljónir árlega í verkefnið. Í fyrra fór verkefnið 140 milljónir fram úr áætlunum. Eyjólfur hefur sagt að ekki sé svigrúm til þess að fara fram úr áætlun á þessu ári né næsta og að ákvörðunin um fasta krónutölu sé tekin með það að leiðarljósi að auka fyrirsjáanleika um hver kostnaðurinn við loftbrú sé árlega.
Eyjólfur segir ekki að um niðurskurð sé að ræða: „Þetta er kerfisbreyting og við erum ekki að skera niður fjárveitingar til þessa málaflokks.“
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðamálum, er honum ósammála:
„Upphæðin sem er eyrnamerkt Loftbrúnni í fjárlögum hefur verið óbreytt frá upphafi. Hún hefur ekki tekið mið af verðlagshækkunum. Ef við horfum bara á verðlagsþróun - þá er nýtingin á Loftbrúnni innan við þá fjárhæð sem var sett í hana á sínum tíma. Hún hefur bara að raunvirði lækkað svo mikið, þess vegna hefur kostnaður farið svona langt fram úr fjárheimildum.“
Skortir fyrirsjáanleika
Þóroddur telur að fyrirsjáanleiki og samráð eigi að vera betra við ákvarðanir er varða líf fólks. Vantað hafi upp á slíkt í ákvörðunum ríkisstjórnarinnar nýverið. Ekki sé hægt að taka ákvarðanir með stuttum fyrirvara sem hafa áhrif á lífsgæði fólks:
„Eins og núna það er verið að taka ákvörðun í lok október sem á að taka gildi í byrjun janúar.“
Hann segir að vinnubrögð og samráð ríkisstjórnarinnar við ákvarðanatökuna hefðu getað verið betri: „Þetta er frekar óheppileg breyting sem kemur að ákvarðanatöku, sérstaklega í svona málefnum sem tengjast dreifðari byggðum.“
„Kornið sem fyllir mælinn“
Sveitarstjórnarfólk á landsbyggðinni hefur verið duglegt að gagnrýna hinar ýmsu ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sagði um breytinguna á Loftbrúnni að hún væri kornið sem fyllir mælinn gagnvart landsbyggðinni:
„Ég verð að segja að mér líst ekkert sérstaklega vel á þetta. Þetta kemur allt heim og saman við kílómetragjaldið og það á að fækka þingmönnum á landsbyggðinni. Þetta er bara kornið sem fyllir mælinn og við getum ekki sætt okkur við að þetta sé orðinn hlutur. “
Frá því að drög að fjárlögum næsta árs voru kynnt hefur í vor hafa sveitarstjórar keppst við að gagnrýna: Skatt á baðlón, hækkun kílómetragjalds, sameiningu lögregluembætta, fækkun þingmanna á landsbyggðinni og nú breytingar á Loftbrú. Aðspurður segir Grétar Þór Eyþórsson að það sé ekki gott að segja hvort að einhver gjá sé að myndast milli stjórnarflokkanna og landsbyggðarinnar.
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst sýndi að yfir 60% íbúa í Norðaustur-, Norðvestur- og Suðurkjördæmi voru andvíg áframhaldandi aðildarviðræðum að ESB en ríkisstjórnarflokkarnir tóku þá ákvörðun að leggja spurninguna um aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Það þarf ekkert að koma á óvart að fólk á landsbyggðinni hafi verið minna hlynnt því að taka skref í áttina að ESB. Vegna þess að þessir undirstöðuatvinnuvegir, sjávarútvegur og landbúnaður, hafa verið undir óvissu annað en atvinnuvegirnir á höfuðborgarsvæðinu. [...] Viðreisn hefur, svona sögulega séð þrátt fyrir að vera ekki gamall flokkur, aldrei verið mikill landsbyggðarflokkur. Þeir náðu þó sögulegum árangri á landsbyggðinni í síðustu Alþingiskosningum,“ segir Grétar Þór Eyþórsson.