Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina en útilokar ekki að endurmeta þá ákvörðun breytist forsendur samstarfsins.
Þetta kom fram í viðtali Jóns við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu, sem Vísir fjallar um. Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í október en er áfram flokksmaður.
„Ég held að það hljóti allir að sjá að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn er bara í smá krísu,“ segir Jón.
Stuðningurinn ekki skilyrðislaus
Við brotthvarf sitt úr þingflokknum gerði Jón skriflegt samkomulag um áframhaldandi stuðning við ríkisstjórnina og samstarf við þingflokk Viðreisnar.
Í umfjöllun Útvarps Sögu um viðtalið kemur fram að Jón líti á stuðning sinn sem ábyrgð sem hann hafi tekið á sig og hyggist standa við. Ríkisstjórnarsamstarf krefjist málamiðlana og þingmenn þurfi stundum að styðja mál sem séu ekki þeirra eigin helstu áherslumál.
Hann vilji að samstarfið haldi en geti þurft að breyta afstöðu sinni telji hann sér ekki lengur stætt á stuðningnum. Hann hafi því ekki veitt ríkisstjórninni skilyrðislausan stuðning út kjörtímabilið.
Gagnrýnir ákvarðanatöku og forystu
Jón lýsir jafnframt óánægju með starfshætti innan Viðreisnar. Að hans sögn hafi ákvarðanir stundum verið teknar áður en þingflokksfundir hófust og síðan kynntar öðrum þingmönnum sem afgreidd mál.
Samkvæmt frétt mbl.is telur Jón ábyrgð á því sem hann lýsir sem ákvarðanafælni fyrst og fremst liggja hjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formanni, en einnig öðrum í forystu flokksins.
Vonbrigði með málefni barna
Jón segir vonbrigði með áherslur flokksins í málefnum barna í erfiðri stöðu hafa vegið þungt í ákvörðun sinni um að yfirgefa þingflokkinn.
Hann hafi átt þátt í að koma á þverpólitískum starfshópi um úrbætur fyrir börn í vanda, en illa hafi gengið að finna fundartíma og mæting verið svo dræm að stundum hafi hópurinn ekki verið fundarfær.
Jón telur sig þó enn eiga pólitíska samleið með Viðreisn. Að hans mati gæti uppgjör og heilbrigt samtal orðið leið til að vinna úr vandanum.
Þorgerður Katrín sagði við brotthvarf Jóns að hún bæri mikla virðingu fyrir honum og að missir væri að honum úr þingflokknum. Þá lagði forysta Viðreisnar áherslu á samkomulagið um áframhaldandi stuðning hans við ríkisstjórnina, eins og fram kom í umfjöllun RÚV.