Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Arcdata ehf. til að greiða fyrrverandi starfsmanni fyrirtækisins, Mateusz Mielniczuk, tæpar 2,9 milljónir króna vegna vangreiddra launa, orlofs og annarra greiðslna. Fyrirtækinu var jafnframt gert að greiða 1,4 milljónir króna í málskostnað.
Mielniczuk starfaði við forritun hjá fyrirtækinu. Laun hans voru upphaflega 400 þúsund krónur á mánuði en höfðu hækkað í 500 þúsund krónur í nóvember 2021. Hann sagði upp störfum í nóvember 2023 en starfaði áfram út þriggja mánaða uppsagnarfrest.
VR, fyrir hönd Mielniczuk, gerði athugasemdir við launagreiðslur eftir yfirferð á launaseðlum, tímaskráningu og bankayfirlitum. Þar kom meðal annars fram að kjarasamningsbundnar launahækkanir hefðu ekki verið greiddar, auk desember- og orlofsuppbóta. Þá var óuppgert orlof og hluti launa síðustu mánaða ógreiddur.
Arcdata hafnaði kröfunum og taldi meðal annars að starfsmaðurinn hefði fengið ofgreidd laun. Fyrirtækið gaf út leiðrétta launaseðla eftir starfslok hans.
Dómurinn taldi þá launaseðla ekki hafa sönnunargildi þar sem þeir voru gefnir út einhliða eftir að ráðningarsambandinu lauk og í kjölfar kröfu um vangreidd laun. Þá taldi dómurinn starfsmanninn eiga rétt á fullum launum út uppsagnarfrestinn og greiðslu fyrir ótekið orlof.
Arcdata var því gert að greiða 2.886.706 krónur ásamt dráttarvöxtum.