Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem herji á þá.
Þriðju mestu afföllin í sex ár
„Þetta eru mikil afföll. Þetta eru samkvæmt mínu bókhaldi þriðju mestu afföll í einum mánuði síðan við fórum að fylgjast með þessu, frá 2020. Þetta er alvarlegt þegar svona mikill fjöldi fiska drepst,“ segir Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar hjá Matvælastofnun.
Afföllin séu að langstærstum hluta vegna marglyttufaraldurs í Reyðarfirði.
„Sem drap þar rúmlega 600 þúsund fiska. Og síðan hafa verið afföll í viðbót sem tengjast útsetningu seiða. Þau eru af margvíslegum ástæðum, hluti af því er að eitthvað af seiðum sem hafa farið út eru ekki orðin sjógönguhæf að fullu. Svo hafa verið undirliggjandi sjúkdómar sem hafa sprottið fram við sjósetningu. Það eru helstu ástæðurnar, sérstaklega í september.“
„Þetta er undir engum kringumstæðum ásættanlegt“
Laxeldisfyrirtækin sem eiga hlut í máli sendu Matvælastofnun ítarleg gögn vegna málsins sem Karl segir að séu í skoðun.
„Þetta er undir engum kringumstæðum ásættanlegt. En þetta er að sjálfsögðu algjörlega á ábyrgð rekstraraðila og þeir geta lent í alls kyns áföllum. Sum af náttúrulegum toga og önnur út af öðru. Við skoðum öll mál og gerum athugasemdir eða kærum eða leggjum á stjórnvaldssektir þegar menn eru að brjóta lögin.“
Engar vísbendingar séu um að lög hafi verið brotin.
„Við erum enn að skoða þetta mál, en þegar tilfelli kemur upp eins og með marglytturnar, þá er þetta eitthvað sem menn sáu ekki fyrir. Þetta verður til þess að þeir fara í mjög aukið viðbragð,“ segir Karl.
„Og við getum ekki séð annað en að menn hafi staðið sig ágætlega í þeim hluta og gert allt til að bjarga því sem hægt var að bjarga,“ segir Karl.