Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.
Skjálfandafljót er kalt og straumhart en myndbandinu sjást piltarnir stökkva af kletti ofan í fljótið neðan við Goðafoss og synda um hylinn. Annar þeirra virðist lenda í vandræðum í straumnum en þeir komast að lokum báðir í land.
Myndbandið var birt í gær en í texta við það kemur fram að þetta hafi gerst 20. september.
Íslenski Instagram-reikningurinn Íslenskt Rugl birti myndbandið í dag. Í svari við fyrirspurn fréttastofu segjast þeir sem standa að reikningnum hafa fengið það sent, en þeir viti ekki hver tók myndbandið upp.
Lögregla kölluð til
Það er ekkert sem bendir til að myndbandið sé búið til með gervigreind. Sama dag og sagt er að myndbandið sé tekið, 20. september, fékk Neyðarlínan símtal vegna tveggja manna í Skjálfandafljóti við Goðafoss. Lögreglan á Norðurlandi eystra staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.
Tilkynningin var um tvo menn sem höfðu hafnað í Skjálfandafljóti, annar væri kominn upp úr en hinn væri enn í fljótinu. Stuttu síðar hefði svo verið hringt aftur og látið vita að ekki væri þörf á aðstoð þar sem mennirnir væru báðir komnir upp úr.