Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desember 2024 komst hún á lista BBC yfir 100 áhrifamestu konur heims.
Linda er með meistaragráðu í Evrópufræðum frá Árósarháskóla og B.A. í spænsku frá Háskóla Íslands. Auk þess er Linda með kennsluréttindi og hefur einnig lokið rekstrar- og fjármálanámi frá Opna Háskólanum í Háskólanum í Reykjavík.
Tótla sem er fertug hefur starfað sem framkvæmdastjóri Barnaheilla í tæp þrjú ár. Þar áður starfaði hún sem fræðslustjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Samtakanna ’78 og var þar áður lengi grafískur hönnuður á fréttastofu Stöðvar 2, nú Sýnar. Tótla er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.
Báðar eiga börn úr fyrri samböndum.