Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frumvarp hennar um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, umsagnarfrestur rennur út í dag.
Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýstu í gær áhyggjum af áformunum.
Í færslu á samfélagmiðlum í dag segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra að hún hafi verið ánægð með jákvæð viðbrögð lögreglumannanna og lögreglustjóra en að hún geri sér grein fyrir því að skoðanir á leiðum að markmiðum verði alltaf skiptar. Frumvarpið sé stór kerfisbreyting, þörf og tímabær.
„Ætlunin er að stækka embættin. Og ég mun núna á haustþingi leggja fram frumvarp um að starfandi verði þrjú stór lögregluembætti í stað þeirra níu sem eru mjög ólík að stærð og burðum.“
Tvö öflug landsbyggðarembætti
Markmiðið sé að til verði tvö öflug landsbyggðarembætti og eitt á suðvesturhorninu. Með stærri embættum skapist forsendur til að byggja upp stærri teymi. Starfsstöðvar lögreglu verði jafnmargar og nú eru og starfandi lögreglumenn jafnmargir.
„Mun meira jafnvægi verður milli embætta með þessu fyrirkomulagi en nú er þar sem lítil embætti eiga að takast á við sömu skyldur og mun fjölmennara lið lögreglu í stærri embættum.“
Hún segir ákvörðunina um að fækka embættunum úr níu í þrjú byggja á niðurstöðu stýrihóps sem byggi á ítarlegri greiningarvinnu.
Hópurinn hafi verið skipaður Grími Hergeirssyni formanni Lögreglustjórafélagsins, Fjölni Sæmundssyni formanni Landssambands lögreglumanna, Höllu Bergþóru Björnsdóttur ríkislögreglustjóra og Páli Winkel og Drífu Kristínu Sigurðardóttur fulltrúum dómsmálaráðuneytisins.
Dómsmálaráðherra hefur ekki orðið við beiðni fréttastofu um viðtal. Færslu ráðherra má lesa í heild sinni hér að neðan.