Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála eftir að sakfellingu héraðsdóms var snúið við og karlmaður sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Í dómi Landsréttar var meðal annars vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hefði mátt gera sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi.
Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun og heyrnartap.
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir dóminn þegar hafa haft alvarlegar afleiðingar.
„Það hafa nú þegar þó nokkrir þolendur hringt inn og bókað viðtöl vegna þess að þeir hafa bara upplifað í rauninni endurtekið áfall vegna þessarar niðurstöðu,“ segir Jenný. „Þetta dregur auðvitað úr trausti til réttarkerfisins og það hafa nokkrir þolendur hér haft orð á því að það taki því ekki að kæra, að þetta sé tilgangslaust og að þetta dómskerfi sé ekki fyrir þolendur heimilisofbeldis eða kynferðisofbeldis.“
Alvarlegum ofbeldismálum fari fjölgandi
Á síðasta ári leituðu hátt í níu hundruð manns til Bjarkarhlíðar og Jenný segir að málum þar sem ofbeldið telst alvarlegt fari fjölgandi.
„Alvarlegt ofbeldi er að aukast, kyrkingartökum fer fjölgandi, eltihrellahegðun er að aukast og þetta eru birtingarmyndir sem við viljum ekki að aukist vegna þess að þetta er yfirleitt þær birtingarmyndir ofbeldis sem segja til um það að mál fari á versta veg,“ segir Jenný. „Gerendur eru að ganga lengra og það er auðvitað vegna þess að afleiðingarnar eru engar fyrir þær.
Hún segir málið til þess fallið að draga úr vilja þolenda til þess að leita réttar síns.
„Og núna er verið að senda þau skilaboð til allra gerenda þarna úti að þeir geti í rauninni haldið ótrauðir áfram að nauðga og beita líkamlegu ofbeldi vegna þess að dómskerfið mun ekki taka á þessu.“