Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.
Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ein klukkustund í stað tveggja. En á Bretlandseyjum, í Færeyjum og Portúgal er klukkan það sama og á Íslandi.
Vetrartíminn verður í gildi til 28. mars á næsta ári.