Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem mælast hnífjafnir í könnunum.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir enga tryggingu fyrir því að gjaldtaka á ferðamannastaði verði eyrnamerkt innviðauppbyggingu. Stjórnarþingmaður úr Suðurkjördæmi segir að sanngjarnara hefði verið að heimta gjald víðar en úr einu kjördæmi en hafa verði í huga að ferðamenn greiða gjaldið, ekki heimamenn.
Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær þar sem Þór náði að tryggja sér áframhaldandi sæti í deildinni á næsta ári.