Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst útkall uppúr klukkan 20:30 í kvöld vegna elds á svölum í raðhúsi í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Eldur hafði kviknað út frá grilli og var tilkynnt um nokkuð mikinn eld í grillinu.
Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir að tveir dælubílar hafi verið sendir af stað en enginn var eldurinn þegar komið var á vettvang.
Íbúðareigandi sýndi snör handtök og tæmdi tvö slökkvitæki á eldinn og náði að slökkva eldinn áður en dælubílar komu á vettvang.