Rómversk-kaþólska erkibiskupsdæmið í New York og lögmenn þess hafa samþykkt að greiða sáttagreiðslur að upphæð 800 milljónir dollara til þolenda kynferðisofbeldis af hálfu kaþólskra presta og starfsmanna kirkjunnar.
The New York Times greinir frá. Alls sögðust 1.300 manns hafa orðið fyrir kynferðislegri misnotkun af hálfu presta og starfsmanna kirkjunnar og fóru í mál við erkibiskupsdæmið. Samkvæmt lögmönnum þolenda felur sáttin í sér að hver og einn þolandi hefur val um eingreiðslu að lágmarki 250.000 dali í bætur eða mögulega hærri bætur, ef þeir vilja láta meta alvarleika kynferðisofbeldisins sérstaklega.
Málaferli hafa staðið yfir í sjö ár. Samningaviðræður um skilmála sáttarinnar hafa staðið yfir í eitt ár, en erkibiskupsdæmið og allir 1.300 þolendurnir þurftu að samþykkja sáttatilboðið.
Gert að birta nöfn og upplýsingar ef ásakanir koma upp
Lögmenn erkibiskupsdæmisins vöruðu við því að ef erkibiskupsdæmið myndi ekki ganga að sáttatillögunni yrði það að öllum líkindum gjaldþrota, endanlegar sáttagreiðslur yrðu lægri og málaferlin myndu dragast enn frekar á langinn.
Erkibiskupsdæminu í New York verður framvegis gert að birta á vefsíðu sinni nöfn presta og starfsfólks sem hefur verið ásakað um kynferðisofbeldi. Listann á að uppfæra ef fleiri trúverðugar ásakanir um ofbeldi koma fram.
Þá þarf erkibiskupsdæmið einnig að skrá og halda utan um upplýsingar um skráð tilvik misnotkunar og gera þau aðgengileg almenningi í Iona-háskólanum.
Sáttargreiðslurnar verða samþykkar formlega með undirskrift í nóvember.