Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að veruleika. Það verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem einkunnir í grunnskóla verða gefnar í tölum. Nýja kerfið nær frá einum upp í tíu. Einkunnir frá einum upp í þrjá verða hins vegar ekki notaðar og einkunnin sjö sýnir að hæfniviðmiðum sé náð. Einkunnirnar átta til tíu sýna að hæfni sé umfram viðmið.
Innleiðing nýs einkunnakvarða var birt í samráðsgátt stjórnvalda og á annað hundrað umsagnir bárust. Margir kennarar virðast telja fyrirvara breytinga of skamman og innleiðinguna að hluta til óskýra. Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, segist hlusta á þær áhyggjuraddir sem heyrst hafa að undanförnu.
„Þetta er auðvitað stórt mál og mikilvægt að þetta verði skýrt og allir skilji þetta með sama hætti,“ sagði Víðir í Vikulokunum. „Ég heyri miklar áhyggjur innan úr kennarastéttinni og það eru kennarar í samskiptum við okkur og það er alveg rými fyrir betri útskýringar gagnvart kennurum og mikilvægt að við náum sameiginlegri sýn á þetta, hverju þetta á að skila líka. Það er það sem gleymist stundum í þessu. Hvað er það raunverulega sem þetta á að skila og mikilvægi þess fyrir börnin, að þau skilji þetta líka.“
Sigurður Örn Hilmarsson sagði í sama þætti að honum þætti breytingarnar einkennast af hálfgerðum æðibunugangi. „Ég á nú barn í 10. bekk sem mætir þessari áskorun að vita ekki nákvæmlega hvaða námsmati hún verður metin á, hvernig það verður hvað varðar inngöngu í menntaskóla. Þetta er auðvitað frekar svona aðgerð til ásýndar að færa bókstafakerfið í tölustafakerfið og mun í sjálfu sér engu breyta að mínu viti,“ segir Sigurður.
„Þetta er bara svo stór áskorun sem menntakerfið stendur frammi fyrir. Við þurfum að gera svo miklu, miklu betur. Hvernig getur staðið á því að við séum að reka eitt dýrasta skólakerfi í heiminum sem er að skila miklu verri árangri en í löndunum í kringum okkur?“ spyr Sigurður.
Rætt var við Víði Reynisson og Sigurð Örn Hilmarsson í Vikulokunum. Í þættinum var einnig rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um námsmatið og aðgerðaáætlun í menntamálum til 2030.