Einstök paradís úti á landi komin á sölu

Einstök eign að Kambastöðum í Ölfusi, skammt frá Hveragerði, hefur verið sett á sölu. Um er að ræða lögbýli á tveggja hektara eignarlóð þar sem gert er ráð fyrir fjórum húsum og fjölbreyttum möguleikum til framtíðar. Ásett verð er 260 milljónir króna.
Á lóðinni stendur 308 fermetra einbýlishús sem byggt var árið 2021. Húsinu hefur verið skipt upp í þrjár aðskildar íbúðir, hverja með sérinngangi, sem gerir eignina meðal annars hentuga fyrir stórfjölskyldu eða útleigu.
Þá er 160,5 fermetra skemma í byggingu á lóðinni. Gert er ráð fyrir að þar verði bílskúr eða verkstæði auk fjögurra herbergja íbúðar. Samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi er jafnframt gert ráð fyrir tveimur húsum til viðbótar, annars vegar yogasal og gróðurhúsi og hins vegar gestahúsi.
Eignin býður upp á ýmsa möguleika vegna stærðar lóðarinnar, fjölda íbúðarrýma og fyrirhugaðrar uppbyggingar. Hún gæti meðal annars hentað stórfjölskyldu, ferðaþjónustu eða heilsutengdri starfsemi.
Kambastaðir standa á fallegum stað í Ölfusi, rétt fyrir utan Hveragerði. Stutt er í helstu þjónustu bæði í Hveragerði og á Selfossi auk þess sem um hálftíma akstur er að höfuðborgarsvæðinu.