Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innviðaráðherra sé strax byrjaður að íhuga endurskoðun á breyttum reglum um Loftbrú.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti á föstudag áform um að niðurgreiðslur Loftbrúar myndu ekki lengur miðast við 40% af flugmiðaverði heldur yrðu þær föst krónutala, 7.000 krónur á hvern legg. Eftir að þau áform mættu harðri gagnrýni sagði Eyjólfur að hann vildi hækka upphæðina í 9.000 krónur á hvern legg.
Jens Garðar var til viðtals um breytingarnar í Morgunútvarpinu á Rás 2.
Jens Garðar sagði að tilkynning ráðherra á föstudag hefði komið sér mjög á óvart. Það væri vegna þess að Eyjólfur hefði heitið því að hafa samráð við alla landsmenn áður en hann tæki ákvörðun um breytingar á Loftbrú. Ekkert slíkt samráð hefði farið fram.
Seinni yfirlýsingar um að hækka niðurgreiðsluna á hverja flugferð komu Jens Garðari þó ekki á óvart. Hann bendir á að heildarfjárhæðin sem hefur verið sett í að niðurgreiða flug íbúa landsbyggðarinnar hafi verið óbreytt, 650 milljónir, í sex ár. Ef hún hefði haldið í við verðlag væri hún um 900 milljónir króna.
Jens Garðar sagði að með því að hækka upphæð úr 7.000 krónum á hvern fluglegg í 9.000 krónur hefði heildarupphæðin hækkað um svipaða upphæð og upp á vantaði til að heildarfjárhæðin hefði haldið í við verðlag.
Hann sagði að hugmyndafræðin að baki loftbrúnni hefði þó verið að fólk á landsbyggðinni gæti keypt flug með stuttum fyrirvara. Það markmið næðist ekki með fastri upphæð á hvern fluglegg.
„Það er rétt hjá þér að innanlandsflugið er skelfilega dýrt, það er skelfilega dýrt, sérstaklega ef þú þarft að fara með skömmum fyrirvara af stað.“