Staðan í rekstri vinsælustu stefnumótaappa í heimi er dökk. Hefur Match Group, móðurfélag Tinder, Match.com, OkCupid og fjölmargra annarra stefnumótaappa, sagt upp 13 prósentum starfsfólks síns á liðnu ári. Þá hefur Bumble þurft að fækka sínu starfsfólki um 30 prósent en frá því Bumble var skráð á hlutabréfamarkað árið 2021 hefur markaðsvirði fyrirtækisins hrunið um 90 prósent, nú hefur fyrirtækið skrifað undir samkomulag um að hverfa af hlutabréfamarkaði.
Hrun stefnumótaforrita: „Þetta er einfaldlega ekki spennandi lengur“