Rúmlega þrítugri konu frá Venesúela, Leidy Díaz, hefur verið vísað frá landinu ásamt börnum sínum tveimur. Leidy Díaz á dótturina Rachell, 13 ára, og soninn Elian sem er fjögurra ára. Elian er fjölfatlaður, með klofinn hrygg, vatnshöfuð, og notar hjólastól. Þeim er gert að sæta endurkomubanni til Íslands.
Kærunefnd útlendingamála kvað upp úrskurð þess efnis í lok september og staðfesti þar með niðurstöðu Útlendingastofnunar frá því í fyrra.
Leidy Diaz hefur stefnt íslenska ríkinu vegna þessa og óskað eftir frestun á því að henni verður vísað úr landi ásamt börnunum. Stefnan var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavíkur um miðjan mánuðinn.
Fjallað var um þetta mál Leidy Diaz og barna hennar tveggja í fréttaskýringaþættinum Þetta helst fyrir tæpu ári. Það sem hefur gerst eftir þessa umfjöllun er að Kærunefnd útlendingamála hefur nú staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa fjölskyldunni í dag og Leidy Diaz ætlar ekki að una þessari niðurstöðu og stefnir íslenska ríkinu. Þetta helst-þáttinn um málið má hlusta á hér.
Öryrkjabandalagið og Þroskahjálp skiluðu greinargerðum
Lögmaður fjölskyldunnar, Jón Sigurðsson, sagði við fréttastofu í viðtali í fyrra að hann hefði aldrei unnið fyrir einstakling sem væri eins slæmur til heilsunnar og sonur Leidy Diaz, Elian: „Af minni reynslu, ég hef verið starfandi í þessu í mörg ár, og ég hef aldrei starfað fyrir einstakling sem er svona slæmur til heilsunnar og líka mjög fatlaður einstaklingur,“ sagði hann.
Í greinargerð Jóns frá því í fyrra kom fram að Útlendingastofnun tæki ekkert tillit til fötlunar drengsins í niðurstöðu sinni.
Orðrétt stóð: „Ekki er að finna svo mikið sem einn bókstaf af umfjöllun í hinum kærðu ákvörðunum um stöðu hans sem fatlaðs einstaklings. Enga tilvísun er að finna til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þrátt fyrir að umræddur samningur hafi verið fullgiltur hér á landi og að til standi að lögfesta hann. Þetta er grundvallaratriði sem er nauðsynlegt að taka tillit til í sambandi við allar kröfur og málsástæður kæranda og er um að ræða gríðarlega alvarlegan galla á málsmeðferð og ákvörðunum Útlendingastofnunar.“
Bæði Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands sendu greinargerðir með máli Leidy Diaz og barna hennar þegar það fór til Kærunefndar útlendingamála þar sem reynt var að tala máli drengsins og fjölskyldu hans.
Fái ekki viðeigandi læknisþjónustu í Venesúela
Inntakið í stefnunni í málinu nú er að Elian geti ekki fengið viðeigandi heilbrigðisþjónustu í heimalandi sínu, Venesúela, en að hann geti aftur á móti fengið hana á Íslandi.
Leidy Diaz sagði í viðtali við fréttastofu í fyrra að hún vildi fyrst og fremst fá að setjast að á Ísandi út af þeirri heilbrigðisþjónustu sem væri í boði fyrir son hennar. Hún segir að starfsfólk Landspítalans hafi bjargað lífi sonar hennar. „Mig langar að senda þakkir til allra þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem hafa komið að því að bjarga lífi sonar míns,” sagði hún.
Fyrri umfjöllun fréttastofu um mál Leidy Diaz og fjölskyldu hennar má lesa hér: