Í texta við myndbandið segir að atvikið hafi átt sér stað 20. september síðastliðinn og að piltarnir hafi stokkið úr um 40 feta hæð, eða rúmlega tólf metrum.
Í upphafi upptökunnar sést annar piltanna standa á klettabrún skammt frá fossinum áður en hann stekkur ofan í vatnið. Hinn fylgir á eftir skömmu síðar.
Þeir sjást síðan synda um hylinn neðan við fossinn og loks í land hinum megin. Annar þeirra virtist hins vegar naumlega ná á bakkann enda straumþungt í ánni.
Upptakan virðist vera klippt saman úr myndskeiðum frá fleiri en einum sjónarhóli. Í nokkrum þeirra heyrast kínverskir ferðamenn hrópa: „我草!“ (wǒ cāo) upp yfir sig sem mætti þýða sem „andskotinn hafi það“.
Til allrar lukku virðast strákarnir sleppa báðir ómeiddir upp úr Skjálfandafljóti, bara blautir og kaldir.