Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa yfir næstu vikuna, þar til 1. nóvember. Fjöldi viðburða er á dagskrá, sem nálgast má á vef hátíðarinnar.
Guja Sandholt, sem hefur verið listrænn stjórnandi Óperudaga frá upphafi, segir ákveðið samfélag hafa myndast í kringum hátíðina. Klassískir söngvarar standi saman og það hafi skilað sér í nýrri þjóðaróperu.
Óperugöngunni í dag lauk við Tjörnina þar sem hollenska verkið Fljótandi dívan heillaði viðstadda. Jóna G. Kolbrúnardóttir er íslenska dívan.