Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Fyrsta vindorkuverið á Íslandi hefur verið gangsett og fleiri eru áformuð. Yfir fjörutíu hugmyndir eru um vindorkukosti víða um land og eru fjórtán þeirra í skipulagsgáttinni. Heimildin fór yfir stöðu vindorkunnar á Íslandi.
Þann 15. september voru fjórar vindmyllur gangsettar í fyrsta vindorkuveri Íslands, Vaðölduveri. Lopapeysuprýddur Karlakór Hreppamanna, sem skipa meðal annars Sigurð Inga Jóhannsson, alþingismann Framsóknarflokksins og fyrrum forsætisráðherra Íslands, flutti íslensk dægurlög við opnunarathöfn í haustsólinni. „Í dag erum við að opna nýjan kafla í íslenskri orkusögu,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í erindi áður en Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra gaf starfsfólki Landsvirkjunar merkið: „Ræsið vélarnar“. Blíðskaparveður við verið varð þó til þess að vindurinn lét lítið sjá sig og vindmyllurnar fóru því hægt af stað.
Vaðölduver er staðsett í Búrfellslundi við Vaðöldu í Rangárþingi ytra og er Landsvirkjun eigandi þess. Stefnt er á að 28 vindmyllur verði starfræktar í verinu fyrir árslok 2027.
Vaðölduver er ekki eina vindorkuverið sem fyrirhugað er að rísi á Íslandi. Í skipulagsgátt er að finna 14 verkefni tengd vindorku sem níu fyrirtæki standa að. Tvö málanna hafa farið í gegnum …