Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.
Göngum upp í gilið, Gljúfrabúann til að sjá, segir í kvæðinu – og þeir eru fjölmargir sem gera það þessi dægrin.
Lengi vel var Gljúfrabúi talinn vera leynd perla í íslenskri náttúru, enda falinn milli klettaveggja, annað en nágrannafossinn Seljalandsfoss, sem blasir við öllum sem aka þjóðveginn.
En nú virðist leyndarhjúpurinn vera rofinn. Gljúfrabúi hefur sótt í sig veðrið undanfarið og vakið athygli, sér í lagi á samfélagsmiðlum.
Ferðamenn sem heimsækja Seljalandsfoss gera sér margir ferð að Gljúfrabúa í leiðinni, sem er steinsnar frá.
Þegar fréttastofu bar að garði biðu ferðamenn í röðum eftir að komast inn í gljúfrið og ná hinni fullkomnu mynd. Og þó að það sé óhjákvæmilegt að blotna við að skoða fossinn, þá virðist fólk almennt telja það þess virði.
Skiptar skoðanir eru um hvor fossinn veki meiri hrifningu. Sumir heillast af auðveldu aðgengi að Seljalandsfossi á meðan öðrum finnst fegurð fólgin í óvenjulegri legu Gljúfrabúa.