Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters. Það er mesta kjörsókn á þeim tíma dags frá því Júgóslavía liðaðist í sundur árið 1992.
Langar raðir mynduðust við kjörstaði víða um land frá því þeir opnuðu í morgun. Um 46,5 prósent höfðu greitt atkvæði þegar klukkan var tvö, samanborið við mun minni þátttöku á sama tíma í síðustu þingkosningum árið 2023.
Úrslitin gætu mögulega legið fyrir seint í kvöld.
Tveggja ára mótmælahreyfing kórónast
Kosningarnar marka hápunkt tæplega tveggja ára mótmælaöldu sem hófst eftir að steypt skyggni við lestarstöðina í Novi Sad hrundi í nóvember 2024 með þeim afleiðingum að sextán létust.
Slysið varð að tákni fyrir það sem mótmælendur telja útbreidda spillingu, frændhygli og ábyrgðarleysi í serbneskum stjórnmálum. Stúdentar tóku forystu í mótmælunum og lokuðu um tíma háskólum og götum víða um land.
Í kosningunum býður hreyfingin fram lista 250 frambjóðenda sem voru valdir á fundum stúdenta við háskóladeildir landsins. Þeirra á meðal eru háskólakennarar, læknar, leikarar og aðrir einstaklingar utan hefðbundinnar flokkspólitíkur.
Vučić vill aftur í forsætisráðuneytið
Helsti andstæðingur hreyfingarinnar er SNS undir forystu Vučić. Vučić hefur verið ráðandi afl í serbneskum stjórnmálum í fjórtán ár, fyrst sem forsætisráðherra og síðar forseti. Hann sagði af sér forsetaembættinu fyrir kosningarnar og hyggst nú snúa aftur í embætti forsætisráðherra nái SNS að mynda ríkisstjórn.
Stuðningsmenn Vučić líta margir á hann sem sterkan leiðtoga sem standi vörð um serbneska hagsmuni. Andstæðingar hans saka stjórn hans aftur á móti um spillingu, pólitísk afskipti af fjölmiðlum og sífellt alræðislegri stjórnarhætti.
Serbía hefur jafnframt fetað vandrataðan milliveg í utanríkismálum undanfarin ár. Serbía er umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu en hefur viðhaldið nánum tengslum við bæði Rússland og Kína og ekki tekið þátt í refsiaðgerðum ESB gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu.
Óttast kosningasvindl
Stúdentahreyfingin sendi að minnsta kosti tvo eftirlitsmenn á hvern kjörstað af ótta við kosningasvindl. Breska ríkisútvarpið greindi frá myndböndum úr borginni Niš sem sögð voru sýna fyrirfram útfyllta kjörseðla. Einnig bárust fregnir af árásum á kosningaeftirlitsmenn og blaðamenn.
Alls eru rúmlega 6,45 milljónir manna á kjörskrá og kosið var á 8.392 kjörstöðum innan lands og utan.
Síðustu skoðanakannanir bentu til mjög jafnrar stöðu. Könnun sem birt var fimm dögum fyrir kosningar mældi Stúdentalistann með 44,5 prósenta stuðning meðal ákveðinna kjósenda en lista SNS með 42,7 prósent. Góð kjörsókn hefur almennt verið talin líklegri til að hjálpa stúdentahreyfingunni.