Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir

Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir

Segir Við­reisn í krísu og úti­lokar ekki að hætta stuðningi - Vísir

Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar fyrr í mánuðinum en er áfram meðlimur í flokknum. Hann gerði skriflegt samkomulag við þingflokkinn um að styðja ríkisstjórnina, fjárlög og stefnumótandi mál hennar og halda áfram nefndarstörfum sínum.

Í löngu viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu segir Jón að hann ætli að standa við þá ákvörðun, en stuðningurinn sé þó ekki skilyrðislaus til frambúðar.

Hann segist ætla að standa við ábyrgð sína og styðja ríkisstjórnina en bætir við að ef svo færi að honum fyndist sér „ekki stætt á því lengur“ eða að málin væru komin „út í óhug sinn“ þyrfti hann að breyta afstöðu sinni.

„Ég útiloka það ekkert.“

Óheilbrigð tengsl aðstoðarmanns og þingflokksformanns

María Rut Kristinsdóttir gegndi tímabundið starfi þingflokksformanns eftir að Sigmar Guðmundsson fór í veikindaleyfi í september. Hún er eiginkona Ingileifar Friðriksdóttur, aðstoðarmanns Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns. Pawel Bartoszek tók síðan við formennsku þingflokksins 13. október og María Rut var kjörin varaformaður.

Jón segir að honum hafi þótt þetta fyrirkomulag óeðlilegt.

„Mér fannst til dæmis óeðlilegt, og ég ræddi það við þau öll, eða þær allar, að sitjandi þingflokksformaður væri eiginkona aðstoðarmanns formanns. Mér fannst það ekki heilbrigt,“ segir Jón.

Hann segir að ekki hafi verið hlustað á þá athugasemd.

Aðspurður hver bæri ábyrgð á því sem hann kallar ákvarðanafælni innan flokksins nefnir Jón fyrst og fremst formanninn, en einnig stjórn flokksins, varaformann og þáverandi starfandi þingflokksformann.

Hann lýsir því einnig nánar sem hann kallar klíkuskap sem hafi meðal annars birst í því að ákvarðanir hafi verið teknar áður en þingflokksfundir hófust og síðan tilkynntar öðrum sem orðinn hlutur.

„Já, já, sem bara tók einhverja ákvörðun og svo var bara búið að taka hana þegar það var tilkynnt um hana,“ segir hann.

Þverpólitískur starfshópur hafi verið „dúsa“

Jón lýsir einnig fundi sínum með Þorgerði Katrínu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þar hafi hann gert henni grein fyrir óánægju sinni með stöðuna og meðal annars viðrað áhyggjur sínar af að málefni barna í erfiðri stöðu fengju, að hans mati, ekki þann stuðning innan flokksins sem hann hefði átt von á.

Þorgerður hafi þá lagt til að Jón leiddi starfshóp sem færi yfir stöðuna innan flokksins og kæmi með tillögur að úrbótum. Jón segist hafa tekið verkefnið að sér með því skilyrði að hann hefði stuðning og traust formanns og stjórnar flokksins.

Þegar vinnan hófst og hann fór að ræða við fólk hafi honum hins vegar orðið ljóst að vandinn væri „talsvert miklu alvarlegri“ en hann hafði gert sér grein fyrir. Jón segist síðar hafa sagt formanni og varaformanni að hann teldi ástandið orðið að „neyðarástandi“ sem þyrfti að bregðast hratt við.

Samskiptavandinn hafi verið orðinn slíkur að „klíkumyndun“ og „sellur“ hafi farið langt um fram það sem eðlilegt á að teljast í stjórnmálum.

„Og það gerðist síðan ekkert,“ segir hann.

Hann hafi ítrekað beðið eftir því að Þorgerður hefði samband til að spyrja hvernig vinnunni miðaði, en það símtal hafi aldrei komið.

„Svo bara einhvern veginn varð það mín skoðun og mín upplifun sú að þetta hefði nú bara verið ákveðin dúsa,“ segir Jón.

Hann segist jafnframt hafa fundið fyrir tortryggni gagnvart sér og því hvað honum gengi til með vinnunni.

Starfshópur stundum ekki fundarfær vegna mætingar

Jón segir vonbrigði sín með áherslu flokksins á málefni barna hafa vegið þungt í ákvörðun sinni.

Hann hafði ásamt Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þáverandi ráðherra barnamála, frumkvæði að þverpólitískum starfshópi um úrbætur fyrir börn í vanda. Jón segir hins vegar að illa hafi gengið að halda vinnunni gangandi.

„Það gekk illa að finna tíma fyrir hópinn til að hittast og fólk mætti illa. Það var stundum ekki fundarfært bara af því að það mætti enginn,“ segir Jón.

Skipulagsbreytingar og ráðherraskipti hafi auk þess orðið til þess að starfsfólk ráðuneytisins hafði takmarkaðri möguleika á að sinna verkefninu. Starfstími hópsins rann síðan út í sumar.

„Viðreisn er bara í smá krísu“

Jón segist enn telja sig eiga pólitíska samleið með Viðreisn en að flokkurinn hafi að hans mati „eitthvað villst af leið“.

Aðspurður hvað þyrfti að breytast til þess að hann gæti snúið aftur í þingflokkinn segir hann að mögulega væri hægt að vinna sig út úr vandanum með uppgjöri og heilbrigðu samtali.

„Ég held að það hljóti allir að sjá að stjórnmálaflokkurinn Viðreisn er bara í smá krísu.“

Hann telur vandann fjölþættan.

„Skipulagsleysi, áföll, veikindi, uppsafnaður samskiptavandi og pólitískar deilur,“ segir hann inntur eftir nánari lýsingu.

Þorgerður Katrín hefur áður sagt að hún ætli ekki að standa í opinberum orðaskiptum við Jón vegna gagnrýni hans. Eftir brotthvarf hans sagði hún jafnframt að hún bæri mikla virðingu fyrir honum og lagði áherslu á að hann hefði gert samkomulag um áframhaldandi stuðning við ríkisstjórnina.

#ekki #krísu #segir #viðreisn #útilokar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262953579d/segir-vidreisn-i-krisu-og-utilokar-ekki-ad-haetta-studningi

📰 Aðrar fréttir

Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Malbiksviðgerðir á Arnarnesvegi
Stefnt er að malbiksviðgerðum á Arnarnesvegi mánudaginn 26. október, milli klukkan 10:00 og 16:00. Búast má við einhverjum töfum á umferð á meðan á fr...
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
📅 25.10.2026 👁️ 1
Funding set to double for plan to get rough sleepers off streets by Christmas
Burnham made ending rough sleeping his first pledge when entering Downing Street in July.
„Noregur sökkar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
„Noregur sökkar“ - Vísir
Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbel...
Deeply divided Israel braces for pivotal election
📅 25.10.2026 👁️ 1
Deeply divided Israel braces for pivotal election
After three years of regional war, this is a battle Israel always knew was coming, writes Lucy Williamson.
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Trump eftir Nóbelsverðlaunin: „Noregur er í raun orðinn skítaland“
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland á kosningafundi í McMorran Place í Port Huron í Michigan nú í dag, sunnudaginn 25. október. Han...
Vučić játar ó­sigur - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vučić játar ó­sigur - Vísir
Serbneski framfaraflokkurinn undir forystu Vučić hefur farið með stjórn landsins í hálfan annan áratug og Vučić sjálfur flakkað á milli embættis forsæ...
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
📅 25.10.2026 👁️ 2
Suðurlandsvegi lokað við Rauðavatn annað kvöld
Kafla af Suðurlandsvegi verður lokað á annað kvöld, frá klukkan átta til miðnættis. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.Stefnt er að malbiksviðger...
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
📅 25.10.2026 👁️ 1
Manchester United & Michael Carrick: Air of inevitability around manager's future but owners' problems far bigger
Manchester United's fans sang their support for Michael Carrick during the 3-0 home defeat by Bournemouth, but voiced their opposition to virtually ev...
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbia's Vučić concedes election defeat to student-led protest movement
The country's populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" hisb Serbian Progressive Party (SNS) has lost.
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
📅 25.10.2026 👁️ 2
Serbia's veteran ruler Vučić concedes election to student-led protest movement
The populist right-wing leader of 12 years says it is "clear" his party has lost the vote billed as a referendum on the country's future.
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vučić viðurkennir ósigur í Serbíu
Aleksandar Vučić, fyrrverandi forseti Serbíu, viðurkennir ósigur í þingkosningunum sem fóru fram í landinu í dag. Hann segir fjöldahreyfingu stúdenta ...
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić - Vísir
Kjörstöðum var lokað klukkan átta að staðartíma í kvöld. Klukkustund fyrr höfðu 67,6 prósent kjósenda þegar greitt atkvæði samkvæmt umfjöllun Reuters....
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Gljúfrabúi veitir Seljalandsfossi samkeppni
Fossinn Gljúfrabúi nýtur vaxandi vinsælda meðal erlendra ferðamanna, en áður var fossinn vel falin perla sem fáir utan landsteinanna vissu af.Göngum u...
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki síðasti alvarlegi netöryggisgallinn sem getur valdið meiriháttar tjóni
Fleiri alvarlegir öryggisgallar, eins og sá sem varað var við í PHP-forritunarmálinu í vikunni, eiga eftir að koma í ljós. Þetta segir Ingólfur Andri ...
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
📅 25.10.2026 👁️ 3
Frambjóðendur í Brasilíu vilja halda kjörstöðum opnum lengur
Kjörstöðum í Brasilíu hefur verið lokað. Önnur umferð forsetakosninga fór fram í landinu í dag.Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru frambjóðendurnir, ...
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kjörstaðir opnir lengur í Brasilíu
Kjörstöðum í Brasilíu verður haldið opnum tveimur klukkustundum lengur en til stóð. Þeir áttu að loka klukkan fimm að staðartíma en verða opnir til kl...
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
50+: Að hætta að vera þjónustu­mið­stöð full­orðinna barna - Vísir
En þetta tveggja áratuga starf sem hefur falið í sér að vera framkvæmdastjóri, skutlari, fjármálastjóri, tilfinningalegur öryggispúði og svo mætti len...
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 3
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 3
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Kjörstöðum lokað í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kjörstöðum lokað í Serbíu
Kjörstöðum í Serbíu hefur verið lokað og búast má við fyrstu tölum eftir um tvær klukkustundir. Þingkosningar voru í landinu í dag og allt bendir til ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 3
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 3
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Long queues after power surge at Stansted Airport
📅 25.10.2026 👁️ 3
Long queues after power surge at Stansted Airport
A passenger says she was trapped in a corridor at the airport for 90 minutes.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 3
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 4
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 4
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 4
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
📅 25.10.2026 👁️ 2
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell Dularfullt geimfarGeimfar sem sást í vesturhluta Bandaríkjanna á þessu ári Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjan...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 3
Man killed by falling tree as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning will remain until Sunday evening as severe weather continues to batter the UK.
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
📅 25.10.2026 👁️ 1
Two men killed by falling trees as Storm Boelo leaves 160,000 properties without power
An amber wind warning has now expired after severe weather sweeps across the UK.
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 4
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 4
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 3
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 4
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 4
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 4
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...