Trump er tíðrætt um einmitt það og ljóst að norska þjóðin hefur ekki verið í miklu uppáhaldi hjá Bandaríkjaforseta frá því að tilkynnt var um að Nóbelsnefnd hefði ákveðið að veita lögmanninum og dómaranum Navanethem Pillay friðarverðlaunin í byrjun þessa mánaðar.
Fundurinn sem um ræðir fór fram í Port Huron í Michiganríki en fram undan eru þingkosningar víða í Bandaríkjunum sem munu hafa mikil áhrif á það sem lifir af kjörtímabili Trump. Horfur repúblikana hafa ekki þótt ýkja góðar í aðdragandanum og því er Trump á þeytingi um landið að safna atkvæðum.
Trump on Nobel Prize: Norway has become a shithouse country actually https://t.co/yQoD8kBgmd
— Acyn (@Acyn) October 25, 2026
Í ræðustól rifjaði Trump upp dagana í kringum tilkynninguna. Hann fullvissar viðstadda um að hann hefði ekki haft neinn tíma til að spá í það hver fengi verðlaunin.
„Svo var tilkynnt um þau og einhver kona sem enginn hafði nokkurn tímann heyrt um fékk þau. Ég sagði: hvað með mig? Gefa þeir tvö?“ sagði hann.
„Þannig að ég er ekki ýkja hrifinn af Noregi. Í hreinskilni sagt sökkar Noregur. Noregur er í raun orðinn skítaland,“ sagði hann svo.