„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““ sagði Obama í gær en hann ávarpaði kjósendur Demókrata í Cleveland í Ohio-ríki á laugardaginn.
Hann hefði samúð með kjósendum sem höfðu hafnað Demókrataflokknum í forsetakosningum 2024 vegna áhyggna sinna af efnahagi Bandaríkjanna í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Trump gæti þó engum kennt nema sjálfum sér vegna hækkandi verðlags.
Þá gagnrýndi Obama Trump fyrir stríðsrekstur sinn í Íran og sagði að átökin hefðu fært Írönum „neitunarvald“ yfir Hormússundi.
Trump hefur sætt gagnrýni vegna hækkandi eldsneytisverðs. Hann hefur á undanförnum vikum lagt mikla áherslu á að kenna árásum Úkraínumanna á rússneska orkuvinnsluinnviði um hátt eldsneytisverð í Bandaríkjunum og um heiminn allan.
Sérfræðingar í þeim málum eru þó sammála um að stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í háu eldsneytisverði í heiminum en árásir Úkraínumanna.
Þingkosningar vestanhafs fara fram þann 3. nóvember næstkomandi og munu þær ráða því hver fer með vald á Bandaríkjaþingi það sem eftir er kjörtímabils Trumps. Kannanir benda til þess að hátt verðlag muni koma sérstaklega mikið niður á Repúblikönum.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin og Trump greiddi atkvæði í gær í Flórída ásamt eiginkonu sinni, forsetafrúnni Melaniu Trump.