Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku sína í hreyfingunni en líka skuggahliðar.
„Ég hef alltaf verið svona manneskja sem vill gera eitthvað gott og þetta var ekkert öðruvísi, fyrr en ég var komin á Austurvöll, þá var þetta eitthvað allt annað.“
Ida tróð sér fremst með skiltið sitt og þegar hún stóð þarna áttaði hún sig á því að þetta var ekki dæmigert góðgerðaverkefni. Þetta var djúpstæður vandi, heimsendir. „Þá var bara ákveðið að þetta yrði lífið mitt,“ segir Ida.
Ida lítur jákvæðum augum á það neikvæða sem fylgdi því að gefa sig alla í baráttuna.
„Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því.“
Ida Karolina Harris segir sögu sína í fimmta þætti af Þessu nútímalífi þar sem loftslagsverkföll ungmenna eru skoðuð í baksýnisspeglinum. Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju? Hvað lærðu þau?
Egill Hermannsson segir einnig frá reynslu sinni í þættinum en hann tók líka virkan þátt í umhverfishreyfingunni og skipulagi.
„Ég held það hafi verið Gunni og Felix sem radíkaliseruðu mig á sínum tíma,“ segir Egill.
Auk Idu og Egils er rætt við Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, um eðli og lífsferil mótmælahreyfinga.